EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Að líknin hafi meira vægi við lífslok. Hlutverk og reynsla hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild

Kristín Þórarinsdóttir, Þóra Gunnarsdóttir

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2026 · 102 (1) · 84-93

DOI: 10.33112/th.102.1.4 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2026. Verfasst von Kristín Þórarinsdóttir und 1 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Bakgrunnur Á gjörgæsludeild eru innlagðir bráð- og alvarlega veikir sjúklingar sem oft þurfa sérhæfða meðferð. Þótt meginmarkmiðið sé að bjarga lífi sjúklings reynist það þó ekki alltaf mögulegt og tekur þá við meðferð sem miðar að því að líkna. Þau umskipti að breyta læknandi meðferð yfir í lífslokameðferð er flókið ferli í hátækniumhverfi eins og á gjörgæsludeild. Tilgangur Tilgangur þessarar rannsóknar er að leitast við að skilja hlutverk og reynslu hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild af því að hjúkra fullorðnum sjúklingum og fjölskyldum þeirra við lok lífs. Markmiðið er að varpa ljósi á hlutverk þeirra í gegnum reynslu þeirra og draga fram þá þætti sem eru mikilvægir og hjálplegir fyrir hjúkrunarfræðinga við slíkar aðstæður. Aðferðafræði Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru rýnihópaviðtöl við sautján hjúkrunarfræðinga frá öllum þremur gjörgæsludeildum á Íslandi. Stuðst var við innihaldsgreiningu við gagnagreiningu. Niðurstöður Greining gagna leiddi í ljós þrjú þemu sem endurspegluðu reynslu þátttakenda af hjúkrun sjúklinga við lok lífs á gjörgæsludeild. Þemun voru: Að reyna að gera þessa stund bærilega, að sjúklingur fái að deyja með reisn; Sem hjúkrunarfræðingur að vera mitt á milli og reyna að dansa, vera á þeim stað sem hver og einn er; og Það þarf víkingarsveitahjúkrunarfræðing. Niðurstöður sýndu að hjúkrunarfræðingar reyndu að gera sitt besta til að stuðla að góðum lífslokum fyrir sjúkling og fjölskyldu hans í flóknu hátækniumhverfi. Þótt oftast hafi ferlið gengið vel gátu hjúkrunarfræðingarnir upplifað togstreitu og vanlíðan við hjúkrun sjúklingsins þegar meðferðin var orðin íþyngjandi fyrir hann. Mikilvægt hlutverk hjúkrunarfræðinganna var að samræma og auðvelda samskipti milli sjúklings, fjölskyldu og lækna, styðja við ákvarðanatöku og sinna fjölskyldum tilfinningalega á meðan ferlinu stendur. Ályktun Auka má gæði umönnunar við lok lífs með því að styðja við hjúkrunarfræðinga með fræðslu og að efla samvinnu fagaðila um ákvörðun um meðferðarmarkmið. Til að tryggja samræmi í meðferðarferlinu er mikilvægt að þróa leiðbeiningar um afturköllun á lífsbjargandi meðferð. Lykihugtök Gjörgæsludeild, hjúkrun, reynsla, hlutverk, eigindleg rannsókn, líknarmeðferð, lífslokameðferð

Zitieren

APA

Þórarinsdóttir, K., & Gunnarsdóttir, Þ. (2026). Að líknin hafi meira vægi við lífslok. Hlutverk og reynsla hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 102(1), 84-93. https://doi.org/10.33112/th.102.1.4

Vancouver

Þórarinsdóttir K, Gunnarsdóttir Þ. Að líknin hafi meira vægi við lífslok. Hlutverk og reynsla hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2026;102(1):84-93. doi:10.33112/th.102.1.4

BibTeX
@article{rarinsdttir2026,
  author = {Þórarinsdóttir, Kristín and Gunnarsdóttir, Þóra},
  title = {Að líknin hafi meira vægi við lífslok. Hlutverk og reynsla hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2026},
  volume = {102},
  number = {1},
  pages = {84--93},
  doi = {10.33112/th.102.1.4}
}
Kostenlos starten →