EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

"Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra" Reynsla deildarstjóra hjúkrunar af áhrifum faghandleiðslu á líðan þeirra og störf

Sunneva Gunnarsdóttir, Hafdís Skúladóttir, Hulda Bryngeirsdóttir

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2026 · 102 (1) · 74-83

DOI: 10.33112/th.102.1.3 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2026. Verfasst von Sunneva Gunnarsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Tilgangur Tilgangur rannsóknarinnar var að öðlast þekkingu og dýpka skilning á reynslu deildarstjóra hjúkrunar á Landspítala af faghandleiðslu, ásamt því að kanna hvaða áhrif faghandleiðsla hefur á líðan þeirra og störf. Aðferð Rannsóknin var eigindleg og notast var við Vancouver-skólann í fyrirbærafræði sem rannsóknaraðferð. Gögnum var safnað með hálfstöðluðum viðtölum við 10 deildarstjóra hjúkrunar á Landspítala sem höfðu reynslu af faghandleiðslu. Þátttakendur voru á aldrinum 42-63 ára og höfðu verið deildarstjórar hjúkrunar í 2-26 ár. Niðurstöður Meginniðurstaða rannsóknarinnar og yfirþema hennar er Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra sem lýsir þeim áhrifum sem faghandleiðslan hafði á störf þátttakenda en þeir upplifðu að faghandleiðsla bætti líðan þeirra og væri styrkjandi fyrir þá sem einstaklinga, sem fagmenn og sem stjórnendur. Meginþemu voru þrjú og hvert þeirra með tvö til þrjú undirþemu. Deildarstjórarnir voru þakklátir fyrir að fá faghandleiðslu frá Landspítala og fannst hún veita þeim persónulega sjálfsstyrkingu og aukið sjálfsöryggi. Faghandleiðslan veitti þeim aukið starfsþrek og hjálpaði þeim við að halda jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Þeir höfðu flestir góða reynslu af hóphandleiðslu en þar drógu þeir lærdóm af reynslu annarra, mynduðu tengsl og upplifðu samkennd í hópnum. Þeir lögðu áherslu á að forgangsraða handleiðslunni en annir og starfsemi deildanna voru það sem kom helst í veg fyrir að þeir gætu mætt. Þeim fannst mikilvægt að vera með góðan handleiðara og sögðu faghandleiðslu vera heilsufarslega forvörn og hluta af því að vera fagmaður. Ályktun Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að faghandleiðsla geti veitt mikilvægan stuðning fyrir millistjórnendur hjúkrunar, bæði faglega og persónulega og að faghandleiðsla gæti gagnast á fleiri heilbrigðisstofnunum á Íslandi. Lykilorð Faghandleiðsla, deildarstjórar hjúkrunar, líðan í starfi, Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði

Zitieren

APA

Gunnarsdóttir, S., Skúladóttir, H., & Bryngeirsdóttir, H. (2026). "Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra" Reynsla deildarstjóra hjúkrunar af áhrifum faghandleiðslu á líðan þeirra og störf. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 102(1), 74-83. https://doi.org/10.33112/th.102.1.3

Vancouver

Gunnarsdóttir S, Skúladóttir H, Bryngeirsdóttir H. "Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra" Reynsla deildarstjóra hjúkrunar af áhrifum faghandleiðslu á líðan þeirra og störf. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2026;102(1):74-83. doi:10.33112/th.102.1.3

BibTeX
@article{Gunnarsdttir2026,
  author = {Gunnarsdóttir, Sunneva and Skúladóttir, Hafdís and Bryngeirsdóttir, Hulda},
  title = {"Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra" Reynsla deildarstjóra hjúkrunar af áhrifum faghandleiðslu á líðan þeirra og störf},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2026},
  volume = {102},
  number = {1},
  pages = {74--83},
  doi = {10.33112/th.102.1.3}
}
Kostenlos starten →