EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

„Það þýðir ekkert endilega að það sé besta útfærslan á starfi skólasálfræðinga“: Störf sálfræðinga við leik- og grunnskóla á Íslandi

Silja Sóley Birgisdóttir, Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, Margrét Sigmarsdóttir

Netla · 04.11.2026

DOI: 10.24270/netla.2026/13 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 04.11.2026. Verfasst von Silja Sóley Birgisdóttir und 2 weiteren Autor:innen. Die Arbeit nennt 59 Literaturangaben. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Sálfræðingar hafa gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku skólakerfi um áratugaskeið en upplýsingar um helstu verkefni þeirra og viðfangsefni eru af skornum skammti. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á bakgrunn og störf sálfræðinga við skóla á Íslandi, mat þeirra á áherslum í eigin starfi og hvernig helstu verkefni þessa faghóps samræmast lagalegu hlutverki skólaþjónustu og stefnumótun stjórnvalda. Rafræn könnun var lögð fyrir starfandi sálfræðinga við leik- og grunnskóla þar sem spurt var meðal annars um bakgrunn, fyrirkomulag og helstu verkefni starfsins, og hvort þátttakendur vildu verja minni eða meiri tíma í mismunandi verkefni. Svör 37 þátttakenda sem sinntu leik- og grunnskólum voru greind. Niðurstöður sýndu að mestum tíma var varið í greiningar á stöðu einstaka nemenda en minni tíma í önnur verkefni, svo sem forvarnir eða ráðgjöf um starfshætti skóla. Skoðanir um hvort verja ætti meiri eða minni tíma í tiltekin verkefni voru skiptar en þó var samhljómur um að verja ætti meiri tíma til forvarna. Ráðgjöf sem þátttakendur veittu beindist helst að foreldrum þar sem umfjöllunarefnið var oftast af sálfélagslegum toga. Þar sem eitt meginhlutverk skólaþjónustu sveitarfélaga er að styðja leik- og grunnskóla sem faglegar stofnanir er athyglisvert að litlum tíma var almennt varið í stuðning og ráðgjöf um starfshætti við starfsfólk þeirra. Auk umfjöllunar um niðurstöður eru settar fram hugmyndir að úrbótum og tillögur að næstu skrefum. Niðurstöðurnar varpa ljósi á hlutverk sálfræðinga við leik- og grunnskóla í núverandi fyrirkomulagi skólaþjónustu sveitarfélaga og eru jafnframt hvatning til frekari rannsókna og stefnumótunar á sviði skólasálfræði á Íslandi.

Zitieren

APA

Birgisdóttir, S. S., Guðmundsdóttir, B. G., & Sigmarsdóttir, M. (2026). „Það þýðir ekkert endilega að það sé besta útfærslan á starfi skólasálfræðinga“: Störf sálfræðinga við leik- og grunnskóla á Íslandi. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2026/13

Vancouver

Birgisdóttir SS, Guðmundsdóttir BG, Sigmarsdóttir M. „Það þýðir ekkert endilega að það sé besta útfærslan á starfi skólasálfræðinga“: Störf sálfræðinga við leik- og grunnskóla á Íslandi. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2026/13

BibTeX
@article{Birgisdttir2026,
  author = {Birgisdóttir, Silja Sóley and Guðmundsdóttir, Bergljót Gyða and Sigmarsdóttir, Margrét},
  title = {„Það þýðir ekkert endilega að það sé besta útfærslan á starfi skólasálfræðinga“: Störf sálfræðinga við leik- og grunnskóla á Íslandi},
  journal = {Netla},
  year = {2026},
  doi = {10.24270/netla.2026/13}
}
Kostenlos starten →