Vellíðan unglinga: Hlutverk fullgildis í skóla og sambands nemenda við kennara
Netla · 06.11.2026
DOI: 10.24270/netla.2026/15 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 06.11.2026. Verfasst von Harpa Björgvinsdóttir und 1 weiteren Autor:innen. Die Arbeit nennt 60 Literaturangaben. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Vellíðan íslenskra unglinga fór að jafnaði versnandi þvert á árganga á árunum 2018 til ársins 2022. Margir íslenskir unglingar upplifðu einnig skort á fullgildi í skóla (e. school belonging) og er það áhyggjuefni þar sem upplifun af fullgildi í skóla telst grundvallarþáttur fyrir vellíðan. Fyrri rannsóknir hafa gefið til kynna að samband nemenda við kennara sé mikilvægt fyrir bæði fullgildi nemenda og vellíðan unglinga. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða þættir tengdust vellíðan unglinga og gætu nýst við mótun skólastarfs. Unnið var úr fyrirliggjandi gögnum úr nemendakönnun Skólapúlsins skólaárið 2024–2025. Úrtak rannsóknarinnar var hentugleikaúrtak 93 stórra og meðalstórra skóla á Íslandi. Þátttakendur voru 18.001 nemandi í 6.–10. bekk. Niðurstöðurnar bentu til að vellíðan stúlkna væri töluvert minni á unglingastigi en miðstigi en að vellíðan drengja væri áþekk á mið- og unglingastigi. Niðurstöðurnar gáfu jafnframt til kynna að vellíðan stúlkna á unglingastigi sem svöruðu á öðru tungumáli en íslensku væri að jafnaði minni en annarra nemenda. Formgerðarlíkan (e. structural equation model) benti til að samband nemenda við kennara tengdist vellíðan nemenda á jákvæðan hátt á tvo vegu. Annars vegar með beinum tengslum (β = 0,20) og hins vegar með óbeinum tengslum (β = 0,15) sem miðlað var um upplifun nemenda af fullgildi í skólanum. Niðurstöðurnar eru í samræmi við nýlegar erlendar niðurstöður á miðlunarhlutverki fullgildis í skólanum fyrir vellíðan ungs fólks. Niðurstöðurnar benda til þess að upplifun nemenda af viðurkenningu, stuðningi og félagslegri þátttöku í skólanum sé nátengd vellíðan þeirra. Niðurstöðurnar beina því sjónum að samskiptum kennara við nemendur og aðstæðum sem styðja við jákvæð tengsl innan nemendahópsins.
Zitieren
APA
Björgvinsdóttir, H., & Stefánsson, K. K. (2026). Vellíðan unglinga: Hlutverk fullgildis í skóla og sambands nemenda við kennara. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2026/15
Vancouver
Björgvinsdóttir H, Stefánsson KK. Vellíðan unglinga: Hlutverk fullgildis í skóla og sambands nemenda við kennara. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2026/15
BibTeX
@article{Bjrgvinsdttir2026,
author = {Björgvinsdóttir, Harpa and Stefánsson, Kristján Ketill},
title = {Vellíðan unglinga: Hlutverk fullgildis í skóla og sambands nemenda við kennara},
journal = {Netla},
year = {2026},
doi = {10.24270/netla.2026/15}
}
EUVIMED