EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

„Ef við hefðum tekið samtalið hefði kannski komið upp hvernig staðan er heima“: Reynsla foreldra af samstarfi heimila og skóla um heimalestur

Rannveig Oddsdóttir, Arna Ásgeirsdóttir, Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir

Netla · 06.11.2026

DOI: 10.24270/netla.2026/16 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 06.11.2026. Verfasst von Rannveig Oddsdóttir und 2 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Regluleg æfing er mikilvæg til að ná tökum á lestri og byggja upp gott læsi. Í íslenskum grunnskólum er hefð fyrir að foreldrar styðji við lestrarnám barna sinna með því að sjá til þess að þau æfi lesturinn heima. Foreldrum er þannig ætlað stórt hlutverk í lestrarnámi barna sinna og mikilvægt er að vita hvernig þeim gengur að rækja það. Markmið rannsóknarinnar var að skoða reynslu foreldra af heimalestri og hvort foreldrar teldu sig fá nauðsynlega leiðsögn og stuðning frá skólanum varðandi heimalestur. Sjónum var jafnframt beint sérstaklega að reynslu foreldra sem eiga börn með lestrarerfiðleika og/eða glíma sjálfir við slíka erfiðleika. Rannsóknin byggði á niðurstöðum spurningakönnunar sem send var til allra foreldra/forráðamanna barna í 1.–7. bekk í einum grunnskóla á landsbyggðinni og rýnihópaviðtölum við 17 foreldra barna í sama skóla. Af svörum þátttakenda að dæma telja foreldrar heimalestur mikilvægan og mikill meirihluti þeirra segir heimalesturinn ganga vel. Hluti foreldra lýsir hins vegar erfiðleikum í sambandi við heimalesturinn og hann er oft meiri áskorun fyrir foreldra þegar lestrarnám barna þeirra gengur erfiðlega og/eða þegar foreldrarnir glíma sjálfir við lestrarerfiðleika. Þeir foreldrar þurfa margir hverjir að hafa meira fyrir því að fá börnin til að lesa og kalla eftir frekari leiðsögn og stuðningi frá skólanum um hvernig þeir geti skapað jákvæða og leiðbeinandi lestrarstund. Í niðurstöðunum kemur líka fram hvernig áhugi á lestri, gengi í lestrarnámi og tíðni heimalesturs tvinnast saman og hefur víxlverkandi áhrif hvað á annað. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að gefa þurfi foreldrum meiri hlutdeild í ákvörðunum er varða fyrirkomulag og framkvæmd heimalesturs og styðja betur við þá, eigi heimalesturinn að ná þeim tilgangi sínum að efla lesfimi, lesskilning og lestraráhuga allra barna.

Zitieren

APA

Oddsdóttir, R., Ásgeirsdóttir, A., & Bjarnadóttir, R. L. (2026). „Ef við hefðum tekið samtalið hefði kannski komið upp hvernig staðan er heima“: Reynsla foreldra af samstarfi heimila og skóla um heimalestur. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2026/16

Vancouver

Oddsdóttir R, Ásgeirsdóttir A, Bjarnadóttir RL. „Ef við hefðum tekið samtalið hefði kannski komið upp hvernig staðan er heima“: Reynsla foreldra af samstarfi heimila og skóla um heimalestur. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2026/16

BibTeX
@article{Oddsdttir2026,
  author = {Oddsdóttir, Rannveig and Ásgeirsdóttir, Arna and Bjarnadóttir, Ragnheiður Lilja},
  title = {„Ef við hefðum tekið samtalið hefði kannski komið upp hvernig staðan er heima“: Reynsla foreldra af samstarfi heimila og skóla um heimalestur},
  journal = {Netla},
  year = {2026},
  doi = {10.24270/netla.2026/16}
}
Kostenlos starten →