EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Ég gæti gróið vel að utan en ekki eins vel að innan: Reynsla einstaklinga af því að fara í hjartastopp utan sjúkrahúss

Elísabeth Tanja Gabríeludóttir, Auður Ketilsdóttir, Margrét Hrönn Svavarsdóttir

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024

DOI: 10.33112/th.100.3.3 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Elísabeth Tanja Gabríeludóttir und 2 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Tilgangur Á heimsvísu er árleg tíðni hjartastopps utan sjúkrahúss 30-97 tilfelli á hverja 100.000 íbúa. Vegna meiri þekkingar á endurlífgun og aukins aðgengis að sjálfvirkum hjartastuðtækjum hefur fjöldi þeirra sem lifa af hjartastopp aukist. Þeir sem lifa af hjartastopp eiga á hættu að glíma við sálrænar afleiðingar eftir áfallið svo sem þunglyndi, kvíða og áfallastreituröskun en rannsóknir benda til að markviss eftirfylgd og stuðningur auki lífslíkur og lífsgæði eftir útskrift af sjúkrahúsi. Markmið rannsóknarinnar var að lýsa upplifun einstaklinga sem lifað hafa af hjartastopp og þörfum þeirra fyrir fræðslu, eftirfylgd og faglegan stuðning. Tilgangurinn var að kanna hvort þörf sé á að bæta þjónustu við þessa einstaklinga eftir útskrift af sjúkrahúsi. Aðferð Í þessari eigindlegu rannsókn var gögnum safnað með hálfstöðluðum einstaklingsviðtölum á árunum 2022-2023. Þátttakendur voru sjö karlar og fimm konur á aldrinum 28-65 ára (M=52 ár), sem höfðu lifað af hjartastopp utan sjúkrahúss á síðastliðnum 6-28 mánuðum. Tekið var eitt viðtal við hvern einstakling. Gögnin voru greind með kerfisbundinni textaþéttingu Malteruds. Niðurstöður Meginniðurstöður rannsóknarinnar voru að þátttakendur upplifðu flóknar og margbreytilegar líkamlegar og sálrænar afleiðingar hjartastoppsins. Greind voru fjögur meginþemu. Þemað Upplifun af hjartastoppi lýsir fyrirboðaeinkennum og upplifun af endurlífguninni. Þemað Færniskerðingar lýsir áhrifum hjartastoppsins á líkamlega og hugræna líðan og getu. Í þemanu Sálrænar afleiðingar lýsa þátttakendur „tilfinningarússíbana“ sem þeir upplifðu eftir hjartastoppið og breyttri sýn á lífið sem felur í sér breytta forgangsröðun, þakklæti og æðruleysi. Síðasta þemað, Þörf fyrir fræðslu og stuðning, lýsir óuppfylltri þörf fyrir fræðslu og eftirfylgd eftir útskrift af sjúkrahúsi. Ályktanir Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að einstaklingar sem lifa af hjartastopp eigi við margvíslegar líkamlegar og sálrænar áskoranir að stríða og upplifi hafsjó tilfinninga. Þörfum þátttakenda fyrir eftirfylgd eftir útskrift af sjúkrahúsi var ekki fullnægt svo nauðsynlegt virðist vera að byggja upp faglega eftirfylgd og stuðning fyrir einstaklinga sem lifa af hjartastopp og aðstandendur þeirra. Lykilorð Eftirfylgd, hjartastopp, hugrænar breytingar, lífsgæði, sálræn líðan

Zitieren

APA

Gabríeludóttir, E. T., Ketilsdóttir, A., & Svavarsdóttir, M. H. (2024). Ég gæti gróið vel að utan en ekki eins vel að innan: Reynsla einstaklinga af því að fara í hjartastopp utan sjúkrahúss. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.3.3

Vancouver

Gabríeludóttir ET, Ketilsdóttir A, Svavarsdóttir MH. Ég gæti gróið vel að utan en ekki eins vel að innan: Reynsla einstaklinga af því að fara í hjartastopp utan sjúkrahúss. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.3.3

BibTeX
@article{Gabreludttir2024,
  author = {Gabríeludóttir, Elísabeth Tanja and Ketilsdóttir, Auður and Svavarsdóttir, Margrét Hrönn},
  title = {Ég gæti gróið vel að utan en ekki eins vel að innan: Reynsla einstaklinga af því að fara í hjartastopp utan sjúkrahúss},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2024},
  doi = {10.33112/th.100.3.3}
}
Kostenlos starten →