EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

„En ég get gert þig hamingjusaman“: Raunir kvenhetja í Me Before You og Fríðu og Dýrinu

Kristín Stella L’orange, Eiríksína Eyja Ásgrímsdóttir, Kristín Björnsdóttir

Netla · 04.08.2026

DOI: 10.24270/netla.2026/10 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 04.08.2026. Verfasst von Kristín Stella L’orange und 2 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Greinin fjallar um kvikmyndina Me Before You (2016) í ljósi listævintýrsins um „Fríðu og Dýrið“ og greinir hvernig kvikmyndin endurskapar hefðbundið ævintýramynstur í samtímalegum búningi. Með því að nota frásagnalíkan A. J. Greimas er mögulegt að varpa ljósi á hlutverk og stöðu aðalsögupersónanna, Lou og Will, og sýna hvernig kvenhetjan gegnir bæði hlutverki geranda og viðtakanda líkt og í klassískum ævintýrum. Sýnt er fram á að þrátt fyrir nútímalegt yfirbragð byggir myndin á gömlum frásagnahefðum þar sem kvenhetjan fer í gegnum umbreytingu sem felur í sér þrautseigju, fórnfýsi og undirgefni gagnvart karlhetjunni. Hún færist upp um stétt og öðlast „frelsi“ sem er háð leiðsögn og gjöfum karlhetjunnar. Samanburðurinn við „Fríðu og Dýrið“ sýnir hvernig bæði ævintýrið og kvikmyndin leggja áherslu á breytingar í lífi karlhetjunnar sem verða mögulegar vegna fórnfýsi kvenhetjunnar, en jafnframt hvernig umbreyting hennar sjálfrar er mótuð af væntingum feðraveldisins um „rétta“ kvenlega hegðun. Greinin sýnir hvernig kvikmyndin Me Before You endursegir ævintýrahefðir fyrri alda og viðheldur hefðbundnum gildum um karla og konur sem birtast undir formerkjum rómantíkur og tilfinningalegs þroska.

Zitieren

APA

L’orange, K. S., Ásgrímsdóttir, E. E., & Björnsdóttir, K. (2026). „En ég get gert þig hamingjusaman“: Raunir kvenhetja í Me Before You og Fríðu og Dýrinu. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2026/10

Vancouver

L’orange KS, Ásgrímsdóttir EE, Björnsdóttir K. „En ég get gert þig hamingjusaman“: Raunir kvenhetja í Me Before You og Fríðu og Dýrinu. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2026/10

BibTeX
@article{Lorange2026,
  author = {L’orange, Kristín Stella and Ásgrímsdóttir, Eiríksína Eyja and Björnsdóttir, Kristín},
  title = {„En ég get gert þig hamingjusaman“: Raunir kvenhetja í Me Before You og Fríðu og Dýrinu},
  journal = {Netla},
  year = {2026},
  doi = {10.24270/netla.2026/10}
}
Kostenlos starten →