EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

„Ég pæli alveg í kynjajafnrétti… en ekki í tengslum við kennslu“: Jafnréttismenntun, stærðfræðikennsla og kynjuð rými

Hafdís Arna Sigurðardóttir, Katrín Ólafsdóttir

Netla · 29.10.2026

DOI: 10.24270/netla.2026/12 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 29.10.2026. Verfasst von Hafdís Arna Sigurðardóttir und 1 weiteren Autor:innen. Die Arbeit nennt 60 Literaturangaben. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Samkvæmt lögum og reglum um skólastarf á Íslandi á að flétta umfjöllun um jafnrétti og jafnréttismenntun inn í allt skólastarf, þvert á faggreinar. Engu að síður virðist það viðhorf algengt að jafnréttismenntun eigi fyrst og fremst heima í samfélagsgreinum en ekki í öðrum faggreinum. Í þessari rannsókn er sjónum beint að birtingarmyndum kynjaðra valdatengsla í stærðfræðikennslu, með áherslu á hlutverk kennara. Eftirfarandi rannsóknarspurningar eru settar fram: Hverjar eru birtingarmyndir kynjaðra valdatengsla í stærðfræðikennslustofunni? Að hve miklu leyti eru kennarar meðvitaðir um sitt hlutverk í mótun kynjaðra rýma? Rannsóknin byggir á sjónarhorni gagnrýninna fræða; kynjafræða og femínískra og hinsegin menntunarfræða, og er viðtals- og vettvangsrannsókn, byggð á gögnum frá sjö þátttakendum úr fimm ólíkum skólum. Meginniðurstöður rannsóknarinnar má greina í þrjú þemu. Í fyrsta lagi voru þátttakendur sammála um að mikilvægt væri að huga að jafnréttismálum í skólastarfi, en flest tengdu slíka vinnu ekki við stærðfræðikennslu. Í öðru lagi mátti greina áberandi áhrif sætaskipunar á kynjun kennslurýma. Í þriðja lagi komu fram kynjaðar staðalmyndir sem mótuðu viðhorf kennara til nemenda og höfðu áhrif á kennsluhætti þeirra. Niðurstöðurnar benda til þekkingarskorts meðal þátttakenda um áhrif kyns á valdatengsl í kennslurýminu og hvernig hægt er að vinna gegn kynjuðum rýmum. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að huga að jafnréttismenntun í stærðfræðikennslu eins og öðrum faggreinum. Mikilvægt er því að veita stærðfræðikennurum fræðslu og verkfæri til að vinna markvisst gegn kynjuðum valdatengslum og sporna þannig gegn kynjun stærðfræðikennslustofunnar.

Zitieren

APA

Sigurðardóttir, H. A., & Ólafsdóttir, K. (2026). „Ég pæli alveg í kynjajafnrétti… en ekki í tengslum við kennslu“: Jafnréttismenntun, stærðfræðikennsla og kynjuð rými. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2026/12

Vancouver

Sigurðardóttir HA, Ólafsdóttir K. „Ég pæli alveg í kynjajafnrétti… en ekki í tengslum við kennslu“: Jafnréttismenntun, stærðfræðikennsla og kynjuð rými. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2026/12

BibTeX
@article{Sigurardttir2026,
  author = {Sigurðardóttir, Hafdís Arna and Ólafsdóttir, Katrín},
  title = {„Ég pæli alveg í kynjajafnrétti… en ekki í tengslum við kennslu“: Jafnréttismenntun, stærðfræðikennsla og kynjuð rými},
  journal = {Netla},
  year = {2026},
  doi = {10.24270/netla.2026/12}
}
Kostenlos starten →