„Ég þarf ekki hrós“: Upplifun grunnskólakennara af faglegri endurgjöf og viðurkenningu í starf
Netla · 13.11.2026
DOI: 10.24270/netla.2026/17 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 13.11.2026. Verfasst von Guðmunda Gunnlaugsdóttir und 1 weiteren Autor:innen. Die Arbeit nennt 48 Literaturangaben. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Mikilvægi endurgjafar í starfi hefur verið áréttað í fjölmörgum rannsóknum, sérstaklega í störfum þar sem erfitt er að meta árangur með formlegum hætti. Starf grunnskólakennara byggist að stórum hluta á samskiptum, tengslum og félagslegum ferlum sem erfitt er að meta með hefðbundnum mælikvörðum. Rannsóknir benda til þess að kennarar upplifi skort á faglegri endurgjöf og að mat á störfum þeirra sé oft óskýrt. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á upplifun grunnskólakennara af endurgjöf og viðurkenningu í starfi og auka skilning á þýðingu hennar í faglegu starfi kennara. Tekin voru hálfopin viðtöl við sextán grunnskólakennara í tólf grunnskólum í sex sveitarfélögum. Þátttakendur voru umsjónarkennarar, faggreinakennarar og sérkennarar með fjölbreytta starfsreynslu. Niðurstöðurnar sýndu að viðmælendur gerðu skýran greinarmun á hrósi annars vegar og faglegri endurgjöf hins vegar. Þótt margir teldu sig ekki þurfa hrós lögðu þeir áherslu á faglega athygli, viðurkenningu og samtal um kennsluna sjálfa. Viðbrögð nemenda gegndu einnig veigamiklu hlutverki í mati kennaranna á eigin starfi og voru mikilvæg uppspretta faglegrar viðurkenningar. Líðan, þátttaka, tengsl og dagleg viðbrögð nemenda voru meðal þeirra vísbendinga sem kennararnir notuðu við mat á eigin árangri. Um leið lýstu margir takmarkaðri reynslu af markvissri endurgjöf frá stjórnendum. Þegar slík endurgjöf átti sér stað lýstu kennarar henni sem mikilvægri fyrir sjálfstraust, starfsánægju og faglega speglun. Niðurstöðurnar benda til þess að endurgjöf felist ekki aðeins í hrósi eða jákvæðri staðfestingu á gæðum hennar heldur einnig í áhuga á kennslunni, sértækri endurgjöf og gagnvirku samtali. Framlag rannsóknarinnar felst einkum í að varpa ljósi á hvernig kennarar greina á milli hróss, faglegrar viðurkenningar og endurgjafar, auk þess að draga fram mikilvægt hlutverk viðbragða nemenda í mati kennaranna á eigin starfi. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi faglegs samtals og endurgjafar í daglegu skólastarfi.
Zitieren
APA
Gunnlaugsdóttir, G., & Kaldalóns, I. V. (2026). „Ég þarf ekki hrós“: Upplifun grunnskólakennara af faglegri endurgjöf og viðurkenningu í starf. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2026/17
Vancouver
Gunnlaugsdóttir G, Kaldalóns IV. „Ég þarf ekki hrós“: Upplifun grunnskólakennara af faglegri endurgjöf og viðurkenningu í starf. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2026/17
BibTeX
@article{Gunnlaugsdttir2026,
author = {Gunnlaugsdóttir, Guðmunda and Kaldalóns, Ingibjörg V.},
title = {„Ég þarf ekki hrós“: Upplifun grunnskólakennara af faglegri endurgjöf og viðurkenningu í starf},
journal = {Netla},
year = {2026},
doi = {10.24270/netla.2026/17}
}
EUVIMED