Tengsl lestraráhugahvatar og lesskilnings nemenda á miðstigi grunnskóla
Tímarit um uppeldi og menntun · 2018
DOI: 10.24270/tuuom.2018.27.9 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit um uppeldi og menntun, 2018. Verfasst von Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir und 2 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Rannsóknir sýna að lestraráhugahvöt hefur áhrif á ýmsar hliðar lestrarfærni, svo sem umskráningu, lesskilning og orðaforða. Börn með litla lestraráhugahvöt lesa minna en jafnaldrar með meiri lestraráhuga og sterk tengsl eru á milli slakrar lestraráhugahvatar, lítils lestrar og lestrarerfiðleika. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig lestraráhugahvöt birtist í 5. og 6. bekk meðal íslenskra nemenda, hvernig hún breytist milli ára og mögulegan kynjamun þar á. Einnig að kanna hvort um tengsl milli lestraráhugahvatar og lesskilnings sé að ræða. Þetta er fyrsta íslenska rannsóknin þar sem hlutverk lestraráhugahvatar í lesskilningi meðal nemenda á miðstigi grunnskóla er rannsakað. Þátttakendur í rannsókninni voru valdir með klasaúrtaki, 400 nemendur úr 24 bekkjum í átta skólum á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi sem svöruðu spurningalista um lestraráhugahvöt í 5. og 6. bekk. Svör þeirra voru svo tengd við gengi þeirra í lesskilningsverkefnum í 6. bekk. Niðurstöður sýndu að lestraráhugi nemendanna var nokkuð stöðugur milli ára og stúlkurnar höfðu að meðaltali meiri lestraráhuga og forðuðust lestur síður en drengir. Þá spáði lestraráhugahvöt í 5. bekk fyrir um framfarir í lesskilningi í 6. bekk. Með auknum skilningi á mikilvægi lestraráhugahvatar í læsisþróun er hægt að þróa leiðir til að auka áhuga með það að markmiði að auka lesskilning.
Zitieren
APA
Hilmarsdóttir, H. G., Birgisdóttir, F., & Gestsdóttir, S. (2018). Tengsl lestraráhugahvatar og lesskilnings nemenda á miðstigi grunnskóla. Tímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/tuuom.2018.27.9
Vancouver
Hilmarsdóttir HG, Birgisdóttir F, Gestsdóttir S. Tengsl lestraráhugahvatar og lesskilnings nemenda á miðstigi grunnskóla. Tímarit um uppeldi og menntun. 2018. doi:10.24270/tuuom.2018.27.9
BibTeX
@article{Hilmarsdttir2018,
author = {Hilmarsdóttir, Hafdís Guðrún and Birgisdóttir, Freyja and Gestsdóttir, Steinunn},
title = {Tengsl lestraráhugahvatar og lesskilnings nemenda á miðstigi grunnskóla},
journal = {Tímarit um uppeldi og menntun},
year = {2018},
doi = {10.24270/tuuom.2018.27.9}
}
EUVIMED