EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

Staða hinsegin nemenda í grunnskólum Kópavogs

Íris Björk Eysteinsdóttir, Íris Ellenberger

Netla · 05.03.2025

DOI: 10.24270/netla.2025/5 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 05.03.2025. Verfasst von Íris Björk Eysteinsdóttir und 1 weiteren Autor:innen. Die Arbeit wurde bisher 2-mal zitiert (Crossref). Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Markmið þessarar rannsóknar er að skilja hvernig staða hinsegin nemenda er í grunnskólum í Kópavogi og hvernig námsumhverfi þeirra er háttað. Við skoðum hvað í umhverfi, skólamenningu og kennsluháttum er inngildandi fyrir hinsegin nemendur með áherslu á hinsegin fræðslu, birtingarmyndir bakslagsins gegn hinsegin fólki og kerfislæga þætti sem hvetja til eða standa í vegi fyrir að hinsegin nemendur standi jafnfætis öðrum nemendum. Niðurstöður gefa til kynna að skólastjórnendur í Kópavogi séu jákvæðir í garð hinsegin fólks og vilji gjarnan skapa jákvætt og öruggt skólaumhverfi fyrir hinsegin nemendur. Þó skortir stefnumörkun og verkferla hjá sveitarfélaginu í þessum efnum og skólarnir virðast ekki fá nægan faglegan stuðning til að taka á málinu með róttækum og markvissum hætti. Stjórnendur sjá því fáar leiðir færar til að takast á við andúð gagnvart hinsegin nemendum, sem er til staðar innan allra skólanna. Viðbrögð þeirra eru því gjarnan að einstaklingsgera samfélagslegan vanda með því að benda á nemendur og foreldra, oftast af erlendum uppruna, sem orsök hinsegin andúðar innan skólans. Lausnin verður því að laga þessi fáu „skemmdu epli“ í stað þess að skoða undirliggjandi viðhorf og kerfi sem jaðarsetja hinsegin nemendur. Skólastjórnendur eru í lykilstöðu til að bæta námsumhverfi hinsegin nemenda en niðurstöður benda þó til þess að menntayfirvöld sveitarfélagsins og hins opinbera þurfi að beita sér í ríkari mæli fyrir kerfislægum breytingum á skólavenjum og skólamenningu til að hægt sé að byggja upp hinseginvæna skóla.

Zitieren

APA

Eysteinsdóttir, Í. B., & Ellenberger, Í. (2025). Staða hinsegin nemenda í grunnskólum Kópavogs. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2025/5

Vancouver

Eysteinsdóttir ÍB, Ellenberger Í. Staða hinsegin nemenda í grunnskólum Kópavogs. Netla. 2025. doi:10.24270/netla.2025/5

BibTeX
@article{Eysteinsdttir2025,
  author = {Eysteinsdóttir, Íris Björk and Ellenberger, Íris},
  title = {Staða hinsegin nemenda í grunnskólum Kópavogs},
  journal = {Netla},
  year = {2025},
  doi = {10.24270/netla.2025/5}
}
Kostenlos starten →