Heilsulæsi fullorðinna á Íslandi: Algengi lágs heilsulæsis og tengsl við lýðfræðilega þætti
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2026 · 102 (2) · 84-93
DOI: 10.33112/th.102.2.5 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2026. Verfasst von Nanna Friðriksdóttir und 7 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna algengi lágs heilsulæsis meðal fullorðinna á Íslandi og greina tengsl þess við lýðfræðilega þætti. Aðferð Þversniðsrannsókn var framkvæmd með netkönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands í desember 2023, byggð á tilviljunarúrtaki fullorðinna (≥18 ára). Svarhlutfall var 42% (n=1027). Heilsulæsi var metið með BRIEF-kvarðanum og gilt heildarskor reiknað fyrir 998 þátttakendur. Niðurstöður voru vigtaðar e&ir kyni, aldri, menntun og búsetu. Leiðrétt líkindahlutföll (aOR) voru reiknuð með vigtaðri tvíkosta lógistískri aðhvarfsgreiningu. Næmnigreiningar voru framkvæmdar og mátgæði líkans metin. Niðurstöður Vigtað algengi lágs heilsulæsis var 39,5% (95% ÖB: 35,5-43,7). Lægri menntun tengdist auknum líkum á lágu heilsulæsi samanborið við háskólamenntun (grunnskóli aOR = 3,86; framhaldsskóli aOR = 1,77). Heimilistekjur ≤ 900 þús. kr./mán. tengdust einnig auknum líkum á lágu heilsulæsi (aOR = 1,77). Aldur 18-29 ára (aOR=3,91) og 45-59 ára (aOR 1,86) tengdust hærri líkum miðað við ≥60 ára. Þátttakendur utan sambúðar/hjónabands höfðu auknar líkur á lágu heilsulæsi (aOR = 1,77) samanborið við þá sem voru í sambúð/ hjónabandi. Kyn, búseta og börn á heimili tengdust ekki lágu heilsulæsi e&ir leiðréttingu. Mátgæði líkansins voru viðunandi. Ályktanir Lágt heilsulæsi mældist hjá fjórum af hverjum tíu fullorðinna á Íslandi og er algengið í samræmi við erlendar rannsóknir. Lægri menntun, lakari efnahagur, yngri aldur og að vera utan sambúðar tengdust auknum líkum á lágu heilsulæsi. Niðurstöður kalla á aðgerðir til að efla heilsulæsi og tryggja jafnræði í aðgengi að skýrum heilbrigðisupplýsingum. Lykilorð heilsulæsi, félags- og efnahagsþættir, fullorðnir, lýðheilsa, þversniðsrannsóknir
Zitieren
APA
Friðriksdóttir, N., Bragadóttir, B., Eiríksdóttir, J., Sigurgeirsdóttir, J., Blöndal, K., Svavarsdóttir, M., Ragnarsdóttir, Þ., & Ingadóttir, B. (2026). Heilsulæsi fullorðinna á Íslandi: Algengi lágs heilsulæsis og tengsl við lýðfræðilega þætti. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 102(2), 84-93. https://doi.org/10.33112/th.102.2.5
Vancouver
Friðriksdóttir N, Bragadóttir B, Eiríksdóttir J, Sigurgeirsdóttir J, Blöndal K, Svavarsdóttir M, et al. Heilsulæsi fullorðinna á Íslandi: Algengi lágs heilsulæsis og tengsl við lýðfræðilega þætti. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2026;102(2):84-93. doi:10.33112/th.102.2.5
BibTeX
@article{Fririksdttir2026,
author = {Friðriksdóttir, Nanna and Bragadóttir, Björk and Eiríksdóttir, Jóhanna and Sigurgeirsdóttir, Jónína and Blöndal, Katrín and Svavarsdóttir, Margrét and Ragnarsdóttir, Þorgerður and Ingadóttir, Brynja},
title = {Heilsulæsi fullorðinna á Íslandi: Algengi lágs heilsulæsis og tengsl við lýðfræðilega þætti},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2026},
volume = {102},
number = {2},
pages = {84--93},
doi = {10.33112/th.102.2.5}
}
EUVIMED