„Ég virðist alltaf falla á tíma“: Reynsla nemenda sem glíma við námsvanda í Háskóla íslands
Tímarit um uppeldi og menntun · 2018
DOI: 10.24270/tuuom.2018.27.8 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit um uppeldi og menntun, 2018. Verfasst von Sigrún Harðardóttir und 1 weiteren Autor:innen. Die Arbeit wurde bisher 1-mal zitiert (Crossref). Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Háskólar þurfa að bregðast við aukinni fjölbreytni í hópi nemenda með því að mæta ólíkum þörfum þeirra. Í greininni eru kynntar niðurstöður rannsóknar á upplifun og reynslu nemenda sem stunda nám við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu nemenda sem glíma við námsvanda. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvað styður og hvað hindrar nemendur í HÍ sem glíma við námsvanda í að takast á við nám sitt? Tekin voru þrjú einstaklingsviðtöl og rýnihópsviðtal við sex nemendur í BA-námi við félagsráðgjafardeild. Niðurstöður sýna að viðmælendur voru ánægðir með ýmsa þætti í skipulagi námsins og fannst skilningur kennara á stöðu þeirra vera góður en töldu þó að í kennsluháttum væru ýmsar hindranir sem gerðu þeim erfitt fyrir. Þær hindranir felist meðal annars í erfiðleikum við aðlögun að háskólasamfélaginu, álagi í námi sem veldur streitu og kvíða og því að of lítið tillit sé tekið til námsvanda þeirra. Slík innsýn í viðhorf nemenda sem glíma við námsvanda getur gagnast kennurum við að taka tillit til fjölbreytileikans í nemendahópnum og stuðlað þannig að bættri sálfélagslegri líðan nemenda, sem aftur hjálpar þeim við námið. Auk þess sýna niðurstöður að aukin áhersla á kennslu í fræðilegum vinnubrögðum ásamt virkri endurgjöf í námi getur hjálpað nemendum með námsvanda.
Zitieren
APA
Harðardóttir, S., & Svavarsdóttir, S. J. (2018). „Ég virðist alltaf falla á tíma“: Reynsla nemenda sem glíma við námsvanda í Háskóla íslands. Tímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/tuuom.2018.27.8
Vancouver
Harðardóttir S, Svavarsdóttir SJ. „Ég virðist alltaf falla á tíma“: Reynsla nemenda sem glíma við námsvanda í Háskóla íslands. Tímarit um uppeldi og menntun. 2018. doi:10.24270/tuuom.2018.27.8
BibTeX
@article{Harardttir2018,
author = {Harðardóttir, Sigrún and Svavarsdóttir, Sveinbjörg Júlía},
title = {„Ég virðist alltaf falla á tíma“: Reynsla nemenda sem glíma við námsvanda í Háskóla íslands},
journal = {Tímarit um uppeldi og menntun},
year = {2018},
doi = {10.24270/tuuom.2018.27.8}
}
EUVIMED