Kulnun kennara og starfsaðstæður: Þróun og samanburður við aðra opinbera sérfræðinga
Netla · 30.01.2020
DOI: 10.24270/netla.2019.12 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 30.01.2020. Verfasst von Sif Einarsdóttir und 3 weiteren Autor:innen. Die Arbeit wurde bisher 2-mal zitiert (Crossref).
Abstract (Originalsprache)
Frá efnahagshruninu 2008 hefur niðurskurður fjármagns leitt til þess meðal annars að minna svigrúm hefur gefist til að takast á við brýn úrlausnarefni í skólastarfi. Vísbendingar eru um að líðan kennara hafi versnað frá árinu 2008 og því er mikilvægt að kanna hvort breytingar hafi orðið á einkennum kulnunar frá fyrri rannsóknum meðal grunnskólakennara á árunum 1999 og 2005. Sami spurningalisti og notaður var í fyrri rannsóknum, Maslach Burnout Inventory (MBI-ES) var lagður fyrir 515 grunnskólakennara í Reykjavík. Konur voru 85%, karlar 15% og svarhlutfallið var 38%. Einnig voru lagðir fyrir listar sem meta annars vegar örmögnunarröskun (The Karolinska Emotional Exhaustion Scale – KEDS) og hins vegar starfsaðstæður (Job Demands-Resource Scale – JDRS). Í ljós kom að einkenni kulnunar meðal grunnskólakennara hafa aukist frá því fyrir hrun, einkum tilfinningaþrot, en grunnskólakennarar meta starfsárangur enn nokkuð mikinn og finna varla til hlutgervingar gagnvart nemendum. Um 42% grunnskólakennara mæta greiningarviðmiðum fyrir örmögnunarröskun samanborið við 31–38% félagsmanna BHM. Hvað starfsaðstæður varðar meta grunnskólakennarar álag mikið en telja sig hafa tækifæri til að vaxa í starfi og fá stuðning frá stofnun, t.d. stjórnendum. Grunnskólakennarar finna til starfsöryggis en þeir hafa ekki mikla möguleika á framgangi í starfi. Álag reyndist hafa sterkust tengsl við kjarnaeinkenni kulnunar, tilfinningaþrot, í líkani Maslach og einnig örmögnunarröskun. Möguleikar til vaxtar í starfi og stuðningur stofnunar virðast hafa verndandi áhrif. Niðurstöður sýna að kulnun hefur aukist og mikilvægt er að huga að starfsaðstæðum grunnskólakennara, sérstaklega of miklu álagi. Ástæður þessa mikla álags geta verið margvíslegar en hugsanlega má rekja þær til hegðunarvanda í nemendahópi, skorts á viðeigandi úrræðum í málefnum nemenda sem veita þarf sérstakan stuðning, aukins foreldrasamstarfs og almenns virðingarleysis gagnvart kennarastarfinu í samfélaginu.
Zitieren
APA
Einarsdóttir, S., Erlingsdóttir, R. B., Björnsdóttir, A., & Snorradóttir, Á. (2020). Kulnun kennara og starfsaðstæður: Þróun og samanburður við aðra opinbera sérfræðinga. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2019.12
Vancouver
Einarsdóttir S, Erlingsdóttir RB, Björnsdóttir A, Snorradóttir Á. Kulnun kennara og starfsaðstæður: Þróun og samanburður við aðra opinbera sérfræðinga. Netla. 2020. doi:10.24270/netla.2019.12
BibTeX
@article{Einarsdttir2020,
author = {Einarsdóttir, Sif and Erlingsdóttir, Regína Bergdís and Björnsdóttir, Amalía and Snorradóttir, Ásta},
title = {Kulnun kennara og starfsaðstæður: Þróun og samanburður við aðra opinbera sérfræðinga},
journal = {Netla},
year = {2020},
doi = {10.24270/netla.2019.12}
}
EUVIMED