Að ráða við umönnun sjúklinga í óreiðukenndu umhverfi. Rýnihóparannsókn meðal sjúkraliða á skurðdeild Landspítala
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2026 · 102 (1) · 54-63
DOI: 10.33112/th.102.1.1 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2026. Verfasst von Katrín Blöndal und 4 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Að lýsa reynslu sjúkraliða af sjúklingamiðaðri hjúkrun aðgerðasjúklinga og hvernig starfsumhverfi og aðstæður geta skipt máli við að veita hágæða og örugga hjúkrun. Aðferð Notuð var eigindleg aðferðafræði þar sem tekin voru þrjú rýnihópaviðtöl við þrettán sjúkraliða sem starfa á skurðlækningadeildum Landspítala. Þátttakendur voru valdir með hentugleikaúrtaki. Viðtölin voru hljóðrituð, vélrituð orðrétt upp og til að fá dýpri skilning á umræðunum voru gögnin dregin saman og þau þemagreind og yfirheiti rannsóknar fundið. Niðurstöður Eitt yfirheiti og tvö meginþemu voru sett fram. Yfirheitið var „Að setja sjúkling, gæði og öryggi hjúkrunar í öndvegi.“ Fyrra meginþemað var „Að líða vel í starfi“, þar sem undirþemun voru, „samvinna, virðing og skilningur skilar betri hjúkrun“, „að tengjast sjúklingunum og vinna með þeim“ og „gaman þegar vel gengur.“ Seinna meginþemað var „Þegar á móti blæs“ og þar voru undirþemun „maður vill náttúrlega geta gefið hverjum og einum tíma og þekkt þarfir þeirra“, „að hlaupa á eftir hjúkrunarfræðingum„ og „óljóst vinnuskipulag, húsakostur og óbein verkefni draga úr gæðum hjúkrunar og auka álag.“ Atriði sem sjúkraliðarnir mátu mikilvæg til að setja sjúklinginn í öndvegi voru mönnun, samskipti, verkskipulag og starfsánægja. Þá fannst þeim mikilvægt að hafa tíma til að sinna nærhjúkrun og andlegum stuðningi. Ályktanir Þörf er á umbótum í starfsumhverfi sjúkraliða á skurðdeildum. Auka þarf tækifæri þeirra til að vaxa í starfi og að beita hæfni sinni að fullu. Innleiða þarf aðgerðir til að fækka verkefnum sem snúa ekki að nærhjúkrun ásamt því að auka nýliðun í stéttinni og halda sjúkraliðum í starfi. Frekari rannsókna er þörf á starfsumhverfi sjúkraliða til að meta hvað hefur áhrif á getu þeirra til að veita hágæða hjúkrun og setja sjúklinginn í öndvegi. Lykilhugtök Sjúkraliðar, hjúkrun, aðgerðasjúklingar, starfsumhverfi, starfsánægja
Zitieren
APA
Blöndal, K., Halldórsdóttir, E., Þorsteinsdóttir, S., Tómasdóttir, T., & Sveinsdóttir, H. (2026). Að ráða við umönnun sjúklinga í óreiðukenndu umhverfi. Rýnihóparannsókn meðal sjúkraliða á skurðdeild Landspítala. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 102(1), 54-63. https://doi.org/10.33112/th.102.1.1
Vancouver
Blöndal K, Halldórsdóttir E, Þorsteinsdóttir S, Tómasdóttir T, Sveinsdóttir H. Að ráða við umönnun sjúklinga í óreiðukenndu umhverfi. Rýnihóparannsókn meðal sjúkraliða á skurðdeild Landspítala. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2026;102(1):54-63. doi:10.33112/th.102.1.1
BibTeX
@article{Blndal2026,
author = {Blöndal, Katrín and Halldórsdóttir, Erna and Þorsteinsdóttir, Silja and Tómasdóttir, Theodóra and Sveinsdóttir, Herdís},
title = {Að ráða við umönnun sjúklinga í óreiðukenndu umhverfi. Rýnihóparannsókn meðal sjúkraliða á skurðdeild Landspítala},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2026},
volume = {102},
number = {1},
pages = {54--63},
doi = {10.33112/th.102.1.1}
}
EUVIMED