Kapphlaupið við tímann: Rýnihóparannsókn á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðdeildum Landspítala
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2026 · 102 (1) · 64-73
DOI: 10.33112/th.102.1.2 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2026. Verfasst von Herdís Sveinsdóttir und 4 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Að kanna mat hjúkrunarfræðinga á því hvaða áhrifaþættir, hvetjandi eða letjandi, eru til staðar í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum Landspítala sem geta haft áhrif á þeirra störf og öryggi sjúklinga á þeirra deildum. Aðferð Eigindleg aðferð þar sem tekin voru þrjú rýnihópaviðtöl við tíu hjúkrunarfræðinga frá sex deildum á skurðlækningaþjónustu Landspítalans. Þátttakendur voru valdir með hentugleikaúrtaki. Viðtölin voru hljóðrituð, vélrituð orðrétt upp og til að fá dýpri skilning á umræðunum voru gögnin dregin saman og þau þemagreind og yfirheiti rannsóknar fundið. Niðurstöður Greind voru fjögur meginþemu, ásamt einu yfirþema. Yfirþema rannsóknarinnar var: „Sjúklingurinn er í fyrsta sæti þegar þú hefur tíma til að sinna honum.“ Heiti meginþemanna voru: „Kapphlaupið við tímann“, „Að gefa sér tíma sparar tíma“, „Talsmaður sjúklings eða stofnunar?“og „Erilsamt umhverfi sem hvetur og letur.“ Hjúkrunarfræðingar beita aðferðum eins og skipulagningu og forgangsröðun verkefna, ýmiss konar samskiptatækni, líkamsmati og samfellu í umönnun til þess að veita góða og örugga hjúkrun en stundum stönguðust hagsmunir sjúklinga og stofnunar á. Styðjandi atriði í starfsumhverfinu voru m.a. góð samskipti innan og milli teyma, samvinna við aðrar fagstéttir, gæðaskjöl og rafrænir samskiptamöguleikar. Letjandi þættir voru t.d. truflanir og að sinna verkefnum utan ábyrgðarsviðs, takmarkandi skráningarkerfi, tímaskortur, vinnuálag og flæðisvandi. Ályktun Niðurstöður benda til þess að hjúkrunarfræðingar í skurðlækningaþjónustu Landspítala starfi undir miklu álagi og ýmsir þættir í starfsumhverfi þeirra aftri þeim frá því að geta haft sjúklinginn í öndvegi og valdi þeim siðferðislegri togstreitu. Ýmsir þættir, sem hægt er að efla, auðvelda þeim þó að láta daginn ganga upp og hafa sjúklinginn í öndvegi þrátt fyrir tímaskort og óreiðukennt umhverfi. Finna þarf leiðir til að bæta starfsumhverfið, draga úr álagi og gera hjúkrunarfræðingum frekar kleift að veita hágæða hjúkrun. Lykilorð Aðgerðasjúklingar, hjúkrunarfræðingar, starfsumhverfi, starfsánægja, öryggi sjúklinga
Zitieren
APA
Sveinsdóttir, H., Wathne, A., Wathne, F., Hilmarsdóttir, S., & Blöndal, K. (2026). Kapphlaupið við tímann: Rýnihóparannsókn á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðdeildum Landspítala. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 102(1), 64-73. https://doi.org/10.33112/th.102.1.2
Vancouver
Sveinsdóttir H, Wathne A, Wathne F, Hilmarsdóttir S, Blöndal K. Kapphlaupið við tímann: Rýnihóparannsókn á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðdeildum Landspítala. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2026;102(1):64-73. doi:10.33112/th.102.1.2
BibTeX
@article{Sveinsdttir2026,
author = {Sveinsdóttir, Herdís and Wathne, Almar and Wathne, Friðrik and Hilmarsdóttir, Sigrún and Blöndal, Katrín},
title = {Kapphlaupið við tímann: Rýnihóparannsókn á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðdeildum Landspítala},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2026},
volume = {102},
number = {1},
pages = {64--73},
doi = {10.33112/th.102.1.2}
}
EUVIMED