„Suma daga nær maður ekki höfðinu upp úr vatninu“
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024
DOI: 10.33112/th.100.2.4 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Sunna Kristinsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða starf teymisstjóra heimahjúkrunar til að varpa ljósi á umfang og ábyrgð starfsins og hvaða leiðsögn og stuðning teymisstjórar fengu til að takast á við starfið. Aðferð Notuð var eigindleg aðferðafræði þar sem tekin voru viðtöl við 10 starfandi teymisstjóra innan heimahjúkrunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Við greiningu gagna var stuðst við vinnulag grundaðrar kenningar og niðurstöður settar fram í flokkum. Niðurstöður Þrír meginflokkar komu fram, hver með tveimur undirflokkum, umfang starfsins, flókin vinnuaðstaða og stuðningur og skipulag. Teymisstjórunum gekk misjafnlega að hafa yfirsýn yfir allt sem tilheyrði starfinu og að forgangsraða verkefnum. Við það skapaðist álag sem meðal annars leiddi til þess að mörgum reyndist erfitt að skilja á milli vinnu og einkalífs. Dæmi voru um að teymisstjórar upplifðu kvíða þegar umfangið varð of mikið. Einnig gat verið áskorun að viðhalda dagskipulagi og bregðast við breytingum með stuttum fyrirvara. Starfsaðstæður í heimahúsum voru mismunandi og aðstæður til hjúkrunar oft erfiðar. Teymisstjórar fengu litla aðlögun í upphafi starfs en meirihluti þeirra var með stutta starfsreynslu. Stuðningur fyrir teymisstjórana var þó til staðar ef þeir báru sig eftir honum sjálfir. Ályktanir Teymisstjórastarfið er umfangsmikið starf og töluvert álag sem því fylgir. Niðurstöður sýndu að hlúa þarf betur að teymisstjórum og þá sérstaklega þeim sem eru nýir í starfi og veita þarf betri stuðning til þess að takast á við þetta krefjandi starf. Lykilorð Teymisstjóri, eigindleg rannsókn, grunduð kenning, starfsaðstæður, stjórnun.
Zitieren
APA
Kristinsdóttir, S., Sigursteinsdóttir, H., & Stefánsdóttir, O. (2024). „Suma daga nær maður ekki höfðinu upp úr vatninu“. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.2.4
Vancouver
Kristinsdóttir S, Sigursteinsdóttir H, Stefánsdóttir O. „Suma daga nær maður ekki höfðinu upp úr vatninu“. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.2.4
BibTeX
@article{Kristinsdttir2024,
author = {Kristinsdóttir, Sunna and Sigursteinsdóttir, Hjördís and Stefánsdóttir, Olga},
title = {„Suma daga nær maður ekki höfðinu upp úr vatninu“},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2024},
doi = {10.33112/th.100.2.4}
}
EUVIMED