„Sykursýki tegund 2 er alvarlegur sjúkdómur sem þarf að hugsa um daglega“: Reynsla einstaklinga, 65 ára og eldri, af sykursýkismóttöku heilsugæslunnar
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024
DOI: 10.33112/th.100.1.4 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Ingibjörg Ósk Guðmundsdóttir und 1 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Til að geta eflt og bætt sykursýkismóttöku fyrir einstaklinga ≥ 65 ára með sykursýki tegund 2 á vegum heilsugæslunnar er mikilvægt að skilja og þekkja reynslu og væntingar þeirra til þjónustunnar. Tilgangur rannsóknarinnar var að fá fram reynslu og væntingar einstaklinga ≥ 65 ára á sykursýkismóttöku á vegum heilsugæslunnar. Aðferð Eigindleg rannsóknaraðferð, gagnaöflun var með rýnihópaviðtölum og eigindlegri aðleiðandi innihaldsgreiningu beitt við úrvinnslu gagna. Skilyrði fyrir þátttöku var að vera ≥ 65 ára, með sjúkdómsgreininguna sykursýki tegund 2. Þátttakendur voru 14 einstaklingar á aldrinum 66 til 82 ára, átta konur og sex karlar sem skipt var í fjóra rýnihópa. Viðtalsrammi rýnihópaviðtala var saminn út frá fræðilegu lesefni og tilgangi rannsóknarinnar. Niðurstöður Aðalþema rannsóknarinnar „Aukin meðvitund um að sykursýki tegund 2 er alvarlegur sjúkdómur sem þarf að hugsa um daglega“ var undirliggjandi viðhorf þátttakenda til sjúkdómsins. Reynsla sem hefur áhrif á öryggis- og vellíðunartilfinningu var rauði þráðurinn í rannsóknarniðurstöðunum. Regluleg innköllun í sykursýkismóttöku, utanumhald og eftirlit var þátttakendum mjög mikilvægt. Skortur á fagfólki og tíðar mannabreytingar drógu úr öryggistilfinningu þátttakenda. Þátttakendur gerðu sér grein fyrir eigin ábyrgð á heilsu sinni en fannst lítil áhersla vera lögð á andlega líðan og heilsu í sykursýkismóttökunni. Einnig fannst þeim vera skortur á fræðslu um fylgikvilla sykursýkinnar svo sem um sykurfall og aukaverkanir lyfja. Almennt voru þátttakendur ánægðir með sykursýkismóttöku á vegum heilsugæslunnar. Ályktun Öryggis- og vellíðunartilfinning er mjög mikilvægur þáttur fyrir einstaklinga ≥ 65 ára með sykursýki tegund 2, sem álitu sjúkdóminn alvarlegan. Það að fagaðili hafði umsjón með innköllun í eftirlit og að hitta fagaðila reglulega skiptir máli. Hjúkrunarfræðingar eru í lykilstöðu til að sinna teymisstjórahlutverki í sykursýkismóttökum vegna heildrænnar nálgunar þeirra á viðfangsefnið og faglegrar þekkingar. Niðurstöðurnar geta nýst hjúkrunarfræðingum og öðrum fagstéttum við að efla og styrkja sykursýkismóttöku á vegum heilsugæslunnar.
Zitieren
APA
Guðmundsdóttir, I. Ó., & Sigurðardóttir, Á. K. (2024). „Sykursýki tegund 2 er alvarlegur sjúkdómur sem þarf að hugsa um daglega“: Reynsla einstaklinga, 65 ára og eldri, af sykursýkismóttöku heilsugæslunnar. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.1.4
Vancouver
Guðmundsdóttir IÓ, Sigurðardóttir ÁK. „Sykursýki tegund 2 er alvarlegur sjúkdómur sem þarf að hugsa um daglega“: Reynsla einstaklinga, 65 ára og eldri, af sykursýkismóttöku heilsugæslunnar. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.1.4
BibTeX
@article{Gumundsdttir2024,
author = {Guðmundsdóttir, Ingibjörg Ósk and Sigurðardóttir, Árún K.},
title = {„Sykursýki tegund 2 er alvarlegur sjúkdómur sem þarf að hugsa um daglega“: Reynsla einstaklinga, 65 ára og eldri, af sykursýkismóttöku heilsugæslunnar},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2024},
doi = {10.33112/th.100.1.4}
}
EUVIMED