Um myrkur sem mæðir og sögur sem græða
Ritið · 30.09.2025 · (2) · 35-60
DOI: 10.33112/ritid.25.2.3 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, online erschienen am 30.09.2025. Verfasst von Aðalheiður Guðmundsdóttir.
Abstract (Originalsprache)
Í þessari grein er fjallað um tvennt sem í fljótu bragði virðist ekki eiga margt sameiginlegt; íslensk ævintýri og myrkur. Í upphafi er rætt um almenn einkenni ævintýra, en einkum þó með tilliti til frásagnarfræði og formgerðar. Að því búnu er litið á tengingu íslenskra ævintýra við staðbundna þætti á borð við náttúru og árstíðir, með áherslu á veturinn, veðurfarið, dagsbirtuna og myrkrið og mörk þeirra, ljósaskiptin eða rökkrið. Spurt er hvort veturinn sé yfir höfuð sýnilegur í íslenskum ævintýrum? Og sé svo, hver sé þá birtingarmynd hans? Í þeim tilgangi að varpa skýrara ljósi á hlutverk vetrarins — og í þrengra samhengi myrkursins — eru ævintýrin sett í samhengi við líf og lífsskilyrði Íslendinga fyrr á öldum og glímu þeirra við náttúruna, hina löngu og dimmu vetur, jafnt sem eigin tilveru. Í framhaldinu er myrkrið skoðað í táknrænu ljósi, sem og frásagnarfræðilegt hlutverk þess innan þeirrar grunnformgerðar sem ævintýrin tilheyra. Að lokum er dregin sú ályktun að myrkrið gegni lykilhlutverki í íslenskum ævintýrum; ekki einungis sé það eitt af því sem kalla megi staðbundin einkenni þeirra, heldur einnig sá þáttur sem kallar — formgerðarinnar vegna — á andstæðu sína, ljósið, eða vonina.
Zitieren
APA
Guðmundsdóttir, A. (2025). Um myrkur sem mæðir og sögur sem græða. Ritið, 35-60. https://doi.org/10.33112/ritid.25.2.3
Vancouver
Guðmundsdóttir A. Um myrkur sem mæðir og sögur sem græða. Ritið. 2025:35-60. doi:10.33112/ritid.25.2.3
BibTeX
@article{Gumundsdttir2025,
author = {Guðmundsdóttir, Aðalheiður},
title = {Um myrkur sem mæðir og sögur sem græða},
journal = {Ritið},
year = {2025},
number = {2},
pages = {35--60},
doi = {10.33112/ritid.25.2.3}
}
EUVIMED