Innleiðing réttinda barna í daglegt leikskólastarf: Reynsla starfsfólks í fimm leikskólum
Netla · 14.04.2026
DOI: 10.24270/netla.2026/6 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 14.04.2026. Verfasst von Anna Magnea Hreinsdóttir und 1 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Í þessari grein er fjallað um eigindlega rannsókn sem gerð var í fimm leikskólum í Reykjavík og beindist að því að varpa ljósi á reynslu starfsfólks af innleiðingu ákvæða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálans) í daglegt starf og hvernig sú vinna mótaði viðhorf, starfshætti og skipulag leikskólanna með hliðsjón af réttindum barna. Rannsóknin byggir á hugmyndum Réttindaskóla UNICEF um rétt barna til þátttöku og lýðræðislegrar menntunar og á kenningum Lundy (2007) um rými, rödd, áheyrn og áhrif. Þá byggir hún á hugmyndum um virka hlustun og siðferðilega ígrundun í réttindanámi. Gagnaöflun var í formi rýnihópaviðtala við kennara, frásagna þeirra af birtingarmyndum réttinda barna í daglegu starfi og skjalagreiningar. Helstu niðurstöður benda til þess að innleiðing réttinda barna krefjist breytinga á viðhorfum og starfsháttum þar sem faglegt lærdómssamfélag og gagnrýnin ígrundun eru lykilforsendur. Þátttakendur lýstu bæði jákvæðum breytingum í átt að auknu sjálfræði og þátttöku barna en einnig áskorunum á borð við skort á fræðslu, leiðsögn og faglegri forystu. Togstreita kom fram milli verndarskyldu og virðingar fyrir sjálfræði barna en niðurstöðurnar sýna að slík siðferðileg spenna getur orðið uppspretta þróunar, umræðu og dýpri skilnings á réttindum barna. Höfundar varpa fram fræðilegum og hagnýtum ábendingum um hvernig réttindi barna megi festa í sessi í leikskólum með lýðræðislegum viðhorfum og starfsháttum.
Zitieren
APA
Hreinsdóttir, A. M., & Pálmadóttir, H. (2026). Innleiðing réttinda barna í daglegt leikskólastarf: Reynsla starfsfólks í fimm leikskólum. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2026/6
Vancouver
Hreinsdóttir AM, Pálmadóttir H. Innleiðing réttinda barna í daglegt leikskólastarf: Reynsla starfsfólks í fimm leikskólum. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2026/6
BibTeX
@article{Hreinsdttir2026,
author = {Hreinsdóttir, Anna Magnea and Pálmadóttir, Hrönn},
title = {Innleiðing réttinda barna í daglegt leikskólastarf: Reynsla starfsfólks í fimm leikskólum},
journal = {Netla},
year = {2026},
doi = {10.24270/netla.2026/6}
}
EUVIMED