EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

Þegar börnin ráða ferðinni: Um þátttöku barna í vettvangsferðum í leikskóla

Margrét Sæmundsdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir

Netla · 13.05.2026

DOI: 10.24270/netla.2026/7 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 13.05.2026. Verfasst von Margrét Sæmundsdóttir und 1 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Í þessari grein er fjallað um starfendarannsókn sem framkvæmd var í einum leikskóla með það að markmiði að efla þátttöku barna í vettvangsferðum. Rannsóknin beinir sjónum að hvernig kennari getur með ígrundun, endurskoðun á eigin starfsháttum og markvissum aðgerðum skapað raunveruleg tækifæri til þátttöku og áhrifa barna í samræmi við lýðræðislegar áherslur í leikskólastarfi. Rannsóknin var gerð á elstu deild leikskólans skólaárið 2024–2025 og tók til 15 barna og starfsfólks deildarinnar. Markmiðið var að þróa nýtt fyrirkomulag vettvangsferða þar sem börnin hefðu áhrif á undirbúning, framkvæmd og úrvinnslu í stað þess að fylgja fyrir fram ákveðnu skipulagi fullorðinna. Gögnum var safnað með rannsóknardagbók, þátttökuathugunum, rýnihópaviðtölum og óformlegum samtölum. Greining gagna byggði á þemagreiningu og þátttökustiga Harts sem nýttur var sem viðmið til að meta þróun þátttöku barnanna. Niðurstöður sýna að þegar kennarinn skapaði aðstæður þar sem börnin gátu haft áhrif á ákvarðanir jókst áhugi þeirra, virkni, sjálfstraust og tenging við ferðina. Jafnframt lærði kennarinn að sveigjanleiki, opnari samskipti og athygli á óyrta tjáningu barna eru lykilþættir í að auka þátttöku þeirra. Rannsóknin gefur til kynna að vettvangsferðir geti breyst úr fyrir fram mótuðum viðburðum yfir í lifandi rannsóknarferli þar sem börn og kennarar eru samrannsakendur. Ályktanir sem af rannsókninni eru dregnar undirstrika að með því að hægja á, hlusta og treysta börnum fyrir raunverulegu vali má efla forvitni, ábyrgð og sköpun þeirra.

Zitieren

APA

Sæmundsdóttir, M., & Hreinsdóttir, A. M. (2026). Þegar börnin ráða ferðinni: Um þátttöku barna í vettvangsferðum í leikskóla. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2026/7

Vancouver

Sæmundsdóttir M, Hreinsdóttir AM. Þegar börnin ráða ferðinni: Um þátttöku barna í vettvangsferðum í leikskóla. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2026/7

BibTeX
@article{Smundsdttir2026,
  author = {Sæmundsdóttir, Margrét and Hreinsdóttir, Anna Magnea},
  title = {Þegar börnin ráða ferðinni: Um þátttöku barna í vettvangsferðum í leikskóla},
  journal = {Netla},
  year = {2026},
  doi = {10.24270/netla.2026/7}
}
Kostenlos starten →