Samfélagsleg seigla í leikskólastarfi: Reynsla starfsfólks af heimsfaraldri COVID-19 og áhrif hans á starfshætti
Netla · 16.11.2026
DOI: 10.24270/netla.2026/18 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 16.11.2026. Verfasst von Björn Rúnar Egilsson und 2 weiteren Autor:innen. Die Arbeit nennt 39 Literaturangaben. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Í þessari grein verða könnuð viðhorf og reynsla starfsfólks leikskóla af leikskólastarfi þegar samkomutakmarkanir vegna heimsfaraldurs COVID-19 voru við lýði í leikskólum og áhrifa þeirra á leikskólastarf í kjölfar faraldursins. Sjö hópar starfsfólks frá jafnmörgum leikskólum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni tóku þátt í hálfstöðluðum rýnihópaviðtölum og deildu reynslu sinni með rannsakendum. Frásagnir þátttakenda eru skoðaðar í ljósi kenninga um þríþætta skiptingu samfélagslegrar seiglu í viðnámsþrótt, aðlögunarhæfni og umbreytingu. Fræðilegur áhugi á samfélagslegri seiglu hefur vaxið á alþjóðavettvangi undanfarið en lítið er vitað um birtingarmyndir hennar innan íslensks menntakerfis. Niðurstöðurnar benda til þess að starfsfólk hafi staðið frammi fyrir margvíslegum áskorunum í daglegu starfi á borð við aukið álag, hræðslu við smit, skort á viðurkenningu frá yfirvöldum, félagslega einangrun á vinnustað og deilur innan starfsmannahópsins. Merki um viðnámsþrótt og aðlögunarhæfni andspænis þessum áskorunum er að finna í frásögnum þátttakenda. Takmarkaðar vísbendingar um nýsköpun og umbreytingu á starfsháttum er þó að finna í gögnunum, nema þá helst í auknum áhuga starfsfólks á hæglæti og flæði í daglegu starfi eftir að faraldrinum lauk. Slíkar breytingar virðast frekar vera afmarkaðar og staðbundnar heldur en kerfislægar. Rannsóknin sýnir mismunandi birtingarmyndir seiglu innan menntakerfisins og varpar ljósi á getu leikskóla til að starfa í óvissuástandi og stuðla að áframhaldandi menntun, uppeldi og umönnun ungra barna þrátt fyrir margvíslegar áskoranir.
Zitieren
APA
Egilsson, B. R., Gunnarsdóttir, B., & Einarsdóttir, J. (2026). Samfélagsleg seigla í leikskólastarfi: Reynsla starfsfólks af heimsfaraldri COVID-19 og áhrif hans á starfshætti. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2026/18
Vancouver
Egilsson BR, Gunnarsdóttir B, Einarsdóttir J. Samfélagsleg seigla í leikskólastarfi: Reynsla starfsfólks af heimsfaraldri COVID-19 og áhrif hans á starfshætti. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2026/18
BibTeX
@article{Egilsson2026,
author = {Egilsson, Björn Rúnar and Gunnarsdóttir, Bryndís and Einarsdóttir, Jóhanna},
title = {Samfélagsleg seigla í leikskólastarfi: Reynsla starfsfólks af heimsfaraldri COVID-19 og áhrif hans á starfshætti},
journal = {Netla},
year = {2026},
doi = {10.24270/netla.2026/18}
}
EUVIMED