EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

Aukið álag og áreiti: Áhrif efnahagshrunsins á leikskólastarf

Anna Elísa Hreiðarsdóttir, Eygló Björnsdóttir

Netla · 30.03.2026

DOI: 10.24270/netla.2017.2 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 30.03.2026. Verfasst von Anna Elísa Hreiðarsdóttir und 1 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Síðla árs 2008 varð niðursveifla í hagkerfi Íslendinga sem leiddi af sér efnahagshrun. Í kjölfar þess þurftu sveitarfélög að hagræða í rekstri sínum og beindust aðgerðir meðal annars bæði að leik- og grunnskólum. Áhrif og afleiðingar þessa á starfsemi leikskóla eru tilefni þessarar rannsóknar. Rannsóknin fór fram vorið 2014 og hafði það að markmiði að leita svara við því að hvaða marki leikskólastjórar teldu að niðurskurður í kjölfar hrunsins hefði haft áhrif á starfsemi leikskóla, bæði hvað varðar rekstrarlega þætti og þætti sem snúa að faglegu starfi í leikskólanum. Rafrænn spurningalisti var sendur til 106 leikskólastjóra og var svarhlutfall 64%. Spurt var um þær aðstæður sem sköpuðust í leikskólanum eftir hrun, en einnig um mat leikskólastjóra á áhrifum þeirra. Spurningar voru bæði lokaðar og hálfopnar og megináhersla var lögð á að greina eigindleg svör. Niðurstöður sýna að efnahagshrunið hefur haft veruleg áhrif á rekstrarumhverfi leikskóla, ekki hvað síst á starfsmannahald, samráðsfundi kennara og stjórnun. Námskrárgerð og þróunarstarf hefur setið á hakanum og álag á skólastjóra og kennara hefur aukist. Aðrar íslenskar rannsóknir á áhrifum hrunsins á leikskólastarf hafa gefið svipaðar niðurstöður. Það gefur tilefni til að álykta að niðurskurður hafi komið niður á faglegu starfi og að hlúa hafi þurft betur að leikskólum fjárhagslega.

Zitieren

APA

Hreiðarsdóttir, A. E., & Björnsdóttir, E. (2026). Aukið álag og áreiti: Áhrif efnahagshrunsins á leikskólastarf. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2017.2

Vancouver

Hreiðarsdóttir AE, Björnsdóttir E. Aukið álag og áreiti: Áhrif efnahagshrunsins á leikskólastarf. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2017.2

BibTeX
@article{Hreiarsdttir2026,
  author = {Hreiðarsdóttir, Anna Elísa and Björnsdóttir, Eygló},
  title = {Aukið álag og áreiti: Áhrif efnahagshrunsins á leikskólastarf},
  journal = {Netla},
  year = {2026},
  doi = {10.24270/netla.2017.2}
}
Kostenlos starten →