EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Forysta sem samstarfsverkefni: Áhersla skólastjóra á valddreifingu og samstarf

Börkur Hansen, Steinunn Helga Lárusdóttir

Netla · 30.01.2020

DOI: 10.24270/netla.2019.14 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 30.01.2020. Verfasst von Börkur Hansen und 1 weiteren Autor:innen. Die Arbeit wurde bisher 2-mal zitiert (Crossref).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Í nútímakenningum um skólastjórnun er kastljósinu jafnan beint að sýn skólastjóra á hlutverk sitt og tengsl við samstarfsfólk. Þá er átt við að skólastjórar og kennarar starfi saman að því að þróa skólastarf og kennsluhætti. Markmiðið með slíkum starfsháttum er að stuðla að auknum gæðum í skólastarfi. Í þessari grein er athyglinni beint að þeim afbrigðum samstarfsforystu sem fengið hafa mikið rými í fræðilegri umræðu á 21. öldinni, þ.e. dreifðri forystu (e. distributed leadership) og kennaraforystu (e. teacher leadership). Gögnum var safnað með spurningakönnun sem send var til allra skólastjóra vorið 2017 og var svarhlutfallið 69%. Í niðurstöðum er dregin upp mynd af aðstæðum í skólunum og greint frá hversu miklum tíma skólastjórar telja sig verja til samstarfs við millistjórnendur, kennara og annað starfsfólk, hversu mikla áherslu þeir leggja á þátttöku millistjórnenda og kennara í ákvörðunum og virkja þá til forystu um þróun kennsluhátta. Í umræðunum um niðurstöðurnar er bent á mikilvægi þess að skólastjórar horfi gagnrýnið á hvert markmiðið með virkjun millistjórnenda og kennara er, þ.e. hvort það sé einkum til að létta vinnuálagi af skólastjórum eða til að dreifa forystu um þróun náms og kennslu. Þá þarf að greina hvort launamál, vinnuálag eða aðrir starfstengdir þættir valdi því að meirihluta skólastjóra veitist erfitt að virkja kennara til kennslufræðilegrar forystu í þágu skólastarfsins alls.

Zitieren

APA

Hansen, B., & Lárusdóttir, S. H. (2020). Forysta sem samstarfsverkefni: Áhersla skólastjóra á valddreifingu og samstarf. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2019.14

Vancouver

Hansen B, Lárusdóttir SH. Forysta sem samstarfsverkefni: Áhersla skólastjóra á valddreifingu og samstarf. Netla. 2020. doi:10.24270/netla.2019.14

BibTeX
@article{Hansen2020,
  author = {Hansen, Börkur and Lárusdóttir, Steinunn Helga},
  title = {Forysta sem samstarfsverkefni: Áhersla skólastjóra á valddreifingu og samstarf},
  journal = {Netla},
  year = {2020},
  doi = {10.24270/netla.2019.14}
}
Kostenlos starten →