UCEEM (Undergraduate Clinical Education Environment Measure) sem mælitæki í íslensku heilbrigðisvísindanámi: og próffræðileg greining á íslensku útgáfunni: Próffræðileg greining og hagnýting í klínísku vinnuumhverfi
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2026 · 102 (2) · 42-51
DOI: 10.33112/th.102.2.1 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2026. Verfasst von Abigail Snook und 2 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Klínískt nám er mikilvægur þáttur í menntun nemenda í heilbrigðisvísindum og mikilvægt að meta upplifun þeirra. UCEEM-mælitækið (The Undergraduate Clinical Education Environment Measure) samanstendur af fjórum undir-kvörðum (26 atriðum). Þeir eru (1) tækifæri til náms og leiðsögn, (2) móttaka nemenda, (3) samskipti og þátttaka á vinnustað, (4) fordómaleysi. Rannsóknir hafa sýnt að þessir þættir skipta miklu máli fyrir upplifun nemenda af gagnsemi náms og líðan á vinnustað. Markmið þessarar rannsóknar var að þýða og aðlaga listann, skoða áreiðanleika og réttmæti hans og kanna hversu gagnlegur íslenski listinn væri til að meta gæði klíníska námsins með því að skoða niðurstöður tveggja nemendahópa í klínísku námi. Aðferðir UCEEM-IS listinn var þýddur beint úr sænsku samkvæmt þýðingarferli og lækna- og hjúkrunarfræðinemum (n=1,222) í klínísku námi á vegum Heilbrigðisvísindasviðs HÍ á vor- og haustmisserum 2023 og 2024 boðið að taka þátt í netkönnun. Af þeim svöruðu 375 nemendur. Staðfestandi þáttagreining (CFA) var framkvæmd ásamt tölfræðiprófum sem skoða áreiðanleika og réttmæti mælitækisins. Reiknuð voru meðaltöl og staðalfrávik fyrir alla þátttakendur og síðan gerð sundurliðun e%ir deildum. Niðurstöður Sex af 26 atriðum voru tekin út þar sem þau mættu ekki skilyrðum staðfestandi þáttagreiningar. Tuttugu atriði þessara fjögurra þátta UCEEM bjuggu yfir mjög góðum innri áreiðanleika, ásamt góðu samleitni-, aðgreiningar- og innihaldsréttmæti. Niðurstöður voru almennt góðar en sýndu þó að leiðbeinendur beggja deilda gætu gert betur varðandi hæfniviðmið klíníska námsins og einnig við að skapa umhverfi þar sem nemendur upplifðu að þeir væru hluti af teymi. Ályktanir UCEEM-IS-mælitækið, aðlagað og stytt úr 26 atriðum í 20 atriði, sýndi að gögnin eru áreiðanleg og styðja við réttmæti. Svör þátttakenda gefa skýrar vísbendingar um hvar mikilvægt sé að bregðast við til að efla gæði klínísks náms. Höfundar leggja til að UCEEM-IS verði nýtt reglulega við mat á upplifun nemenda af klínísku námi. Lykilorð pró&ræðilegir eiginleikar, nemar í heilbrigðisvísindum, leiðsögn í klínísku námi, persónuleg ánægja, mat á klínísku námi
Zitieren
APA
Snook, A., Schram, Á., & Björnsdóttir, G. (2026). UCEEM (Undergraduate Clinical Education Environment Measure) sem mælitæki í íslensku heilbrigðisvísindanámi: og próffræðileg greining á íslensku útgáfunni: Próffræðileg greining og hagnýting í klínísku vinnuumhverfi. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 102(2), 42-51. https://doi.org/10.33112/th.102.2.1
Vancouver
Snook A, Schram Á, Björnsdóttir G. UCEEM (Undergraduate Clinical Education Environment Measure) sem mælitæki í íslensku heilbrigðisvísindanámi: og próffræðileg greining á íslensku útgáfunni: Próffræðileg greining og hagnýting í klínísku vinnuumhverfi. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2026;102(2):42-51. doi:10.33112/th.102.2.1
BibTeX
@article{Snook2026,
author = {Snook, Abigail and Schram, Ásta and Björnsdóttir, Guðfinna},
title = {UCEEM (Undergraduate Clinical Education Environment Measure) sem mælitæki í íslensku heilbrigðisvísindanámi: og próffræðileg greining á íslensku útgáfunni: Próffræðileg greining og hagnýting í klínísku vinnuumhverfi},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2026},
volume = {102},
number = {2},
pages = {42--51},
doi = {10.33112/th.102.2.1}
}
EUVIMED