Á milli steins og sleggju: Reynsla hjúkrunarfræðinga af stjórnun og rekstri hjúkrunarheimila á Íslandi
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2023
DOI: 10.33112/th.99.3.4 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2023. Verfasst von Berglind Steindórsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna reynslu hjúkrunarfræðinga af stjórnun og rekstri hjúkrunarheimila sem rekin eru með daggjöldum frá Sjúkratryggingum Íslands. Aðferð Rannsóknin var eigindleg viðtalsrannsókn. Tekin voru átta einstaklingsviðtöl og tvö rýnihópaviðtöl með notkun hálfstaðlaðs viðtalsramma við alls 16 hjúkrunarstjórnendur. Gögn voru greind með innihaldsgreiningu þar sem efni var flokkað í þemu sem sameinuðust í yfirþema. Niðurstöður Yfirþema rannsóknarinnar var að hjúkrunarstjórnendum fannst þeir vera á milli steins og sleggju þar sem fjármagn var ekki í takt við kröfur um gæði. Yfirþemað greindist niður í þrjú meginþemu. Hið fyrsta, Með marga bolta á lofti, birtist í krefjandi starfi með mikilli faglegri ábyrgð, starfsánægju sem var álaginu yfirsterkari og mikilvægi faglegs stuðnings. Í öðru þemanu, Erfitt að uppfylla gæðakröfur, kom fram að daggjöld væru of lág til að uppfylla gæðakröfur og þörf væri á fleira fagmenntuðu starfsfólki til að tryggja gæði. Í þriðja þemanu, Kostir og takmarkanir RAI-mats, kom fram að gæðavísar nýttust í gæðastarfi ef tími vinnst til en að matið endurspeglaði oft ekki hjúkrunarþyngd og mönnunarþörf nægilega vel. Ályktanir Niðurstöður gefa til kynna að hjúkrunarheimili þurfi aukið fjármagn til að auka gæði þjónustu, tryggja fagmennsku og öryggi. Taka þarf til greina gagnrýni hjúkrunarfræðinga um að RAI-mælitækið nýtist ekki alltaf nægilega vel við mat á hjúkrunarþyngd og umönnunarþörf íbúa. Niðurstöðurnar geta nýst við stefnumótun og mörkun framtíðarsýnar fyrir öldrunarþjónustu. Lykilorð Aldraðir, hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarheimili, stjórnun, interRAI, innihaldsgreining, rýnihópar.
Zitieren
APA
Steindórsdóttir, B., Jónsdóttir, Þ., & Þórarinsdóttir, K. (2023). Á milli steins og sleggju: Reynsla hjúkrunarfræðinga af stjórnun og rekstri hjúkrunarheimila á Íslandi. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.99.3.4
Vancouver
Steindórsdóttir B, Jónsdóttir Þ, Þórarinsdóttir K. Á milli steins og sleggju: Reynsla hjúkrunarfræðinga af stjórnun og rekstri hjúkrunarheimila á Íslandi. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2023. doi:10.33112/th.99.3.4
BibTeX
@article{Steindrsdttir2023,
author = {Steindórsdóttir, Berglind and Jónsdóttir, Þorbjörg and Þórarinsdóttir, Kristín},
title = {Á milli steins og sleggju: Reynsla hjúkrunarfræðinga af stjórnun og rekstri hjúkrunarheimila á Íslandi},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2023},
doi = {10.33112/th.99.3.4}
}
EUVIMED