EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Áhrif innleiðingar stafrænnar tækni á störf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum Rafræn skráning lyfjagjafar og umönnunar

Henný Birgisdóttir, Anna Islind

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2026 · 102 (1) · 94-103

DOI: 10.33112/th.102.1.5 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2026. Verfasst von Henný Birgisdóttir und 1 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Tilgangur Skilvirk skráning sjúklingagagna og lyfjaöryggi skipta miklu máli á heilbrigðisstofnunum, þar sem verkefnin eru bæði flókin og tímafrek, á sama tíma og skortur er á starfsfólki. Rannsóknin skoðar innleiðingu og áhrif Iðunnar, smáforrits til skráningar á umönnun, og Lyfjavaka, smáforrits fyrir lyfjaskráningar, á hjúkrunarheimilum. Um er að ræða stafrænar heilbrigðistæknilausnir sem hannaðar eru til að straumlínulaga vinnuflæði og bæta gæði umönnunar. Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif þessara smáforrita á vinnuferla starfsfólks og leggja mat á innleiðingarferlið sjálft. Sérstök áhersla var lögð á að greina áhrif tækninnar á daglega skráningu, öryggi og vinnutíma, auk þess að bera kennsl á áskoranir sem nýst geta til að bæta innleiðingu stafrænnar heilbrigðistækni. Aðferð Gögnum var safnað með aðgerðarrannsókn (e. Action research) sem innihélt 17 viðtöl við lykilaðila (yfirmenn hjúkrunardeilda og hjúkrunarfræðinga) ásamt athugunarrannsókn (e. Observational study) sem innihélt 58 klukkustunda athugun. Niðurstöður Niðurstöðurnar benda til þess að Lyfjavaki hafi aukið upplifað öryggi í lyfjagjöf og stutt við lagalegar kröfur um skráningu lyfja án þess að lengja skráningartíma marktækt. Notkun Iðunnar tengdist auknum upplifðum gæðum klínískrar skráningar og umtalsverðum tímasparnaði, þar sem skráningartími var að meðaltali um 26 mínútum styttri (p=0.039). Að auki voru stöðufundir og vaktaskipti samanlagt að meðaltali 54 mínútum styttri (p=0.020), og tími sem varið var með íbúum var að meðaltali um 95 mínútum lengri (p=0.039) þar sem notast var við Iðunni. Ályktanir Rannsóknin leiðir í ljós að innleiðing stafrænnar heilbrigðistækni eins og Iðunnar og Lyfjavaka á hjúkrunarheimilum getur bæði bætt öryggi sjúklinga og flæði í klínísku starfi. Hins vegar reyndist innleiðingarferlið krefjandi, einkum vegna tímaskorts yfirmanna hjúkrunardeilda og mótstöðu starfsfólks. Til að takast á við þessar áskoranir voru greindir lykilþættir fyrir farsæla innleiðingu, þar sem lögð er áhersla á mikilvægi góðs undirbúnings, markvissrar þjálfunar og áframhaldandi stuðnings. Lykilhugtök Rafræn sjúkraskrá, stafræn heilbrigðistækni, hjúkrunarheimili, skráningar, smáforrit

Zitieren

APA

Birgisdóttir, H., & Islind, A. (2026). Áhrif innleiðingar stafrænnar tækni á störf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum Rafræn skráning lyfjagjafar og umönnunar. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 102(1), 94-103. https://doi.org/10.33112/th.102.1.5

Vancouver

Birgisdóttir H, Islind A. Áhrif innleiðingar stafrænnar tækni á störf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum Rafræn skráning lyfjagjafar og umönnunar. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2026;102(1):94-103. doi:10.33112/th.102.1.5

BibTeX
@article{Birgisdttir2026,
  author = {Birgisdóttir, Henný and Islind, Anna},
  title = {Áhrif innleiðingar stafrænnar tækni á störf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum Rafræn skráning lyfjagjafar og umönnunar},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2026},
  volume = {102},
  number = {1},
  pages = {94--103},
  doi = {10.33112/th.102.1.5}
}
Kostenlos starten →