Áhrif hjúkrunar á gæði lífslokameðferðar á gjörgæsludeildum. Samþætt fræðileg samantekt.
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024
DOI: 10.33112/th.100.3.2 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Anna Halla Birgisdóttir und 1 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Tilgangur þessarar samantektar var að samþætta niðurstöður rannsókna um árangursríka umönnunarþætti hjúkrunar gagnvart gjörgæslusjúklingum við lífslok og fjölskyldum þeirra. Aðferð Samþætt fræðileg samantekt var framkvæmd með aðferð Whittemore og Knafl. Til að tryggja gæði rannsókna í samantektinni var stuðst við gæðamatsverkfæri frá Joanna Briggs Institute. Leitað var að nýlegum rannsóknum í PubMed- og CINAHL- gagnagrunnum á tímabilinu maí 2020 til febrúar 2023. Rannsóknir voru valdar, greindar og niðurstöður birtar samkvæmt leiðbeiningum PRISMA (“Preferred Reporting Items for Systematic Reviews and Meta-Analyses statement”). Niðurstöður Tuttugu og tvær rannsóknir voru í samantektinni. Niðurstöður sýndu fram á mikilvægi framlags hjúkrunarfræðinga til að tryggja góða einkennameðferð gjörgæslusjúklinga við lífslok og til margs konar stuðnings við aðstandendur til að gera upplifun þeirra betri. Fjögur þemu greindust: „Mikilvægi þekkingar hjúkrunarfræðinga á hjúkrun við lífslok“, „Góð einkennameðferð við lífslok“, „Þátttaka fjölskyldu í umræðum um meðferðartakmarkanir gjörgæslusjúklinga“ og „Fjölskyldumiðuð hjúkrun við lífslok gjörgæslusjúklinga“. Niðurstöður benda til þess að bæta megi einkennameðferð gjörgæslusjúklinga við lífslok. Þá virðist þörf á auknum stuðningi frá heilbrigðisstarfsfólki til fjölskyldna sem myndi auðvelda þeim þátttöku í ákvörðunum um meðferðir eða takmarkanir þeirra við lífslok ástvina á gjörgæslu. Ályktanir Mikilvægt er að menntun og þjálfun í líknarmeðferð og lífslokameðferð sé aðgengileg fyrir alla hjúkrunarfræðinga sem vinna á gjörgæslu. Þessi yfirlitsgrein tekur saman leiðbeiningar um hjúkrun sem mögulega nýtist hjúkrunarfræðingum við lífslokameðferð á gjörgæsludeild. Lykilorð Lífslokameðferð, gjörgæsla, líknarmeðferð, fjölskylduhjúkrun, samskipti
Zitieren
APA
Birgisdóttir, A. H., & Gunnarsdóttir, Þ. J. (2024). Áhrif hjúkrunar á gæði lífslokameðferðar á gjörgæsludeildum. Samþætt fræðileg samantekt. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.3.2
Vancouver
Birgisdóttir AH, Gunnarsdóttir ÞJ. Áhrif hjúkrunar á gæði lífslokameðferðar á gjörgæsludeildum. Samþætt fræðileg samantekt. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.3.2
BibTeX
@article{Birgisdttir2024,
author = {Birgisdóttir, Anna Halla and Gunnarsdóttir, Þóra Jenný},
title = {Áhrif hjúkrunar á gæði lífslokameðferðar á gjörgæsludeildum. Samþætt fræðileg samantekt},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2024},
doi = {10.33112/th.100.3.2}
}
EUVIMED