Orsakir svefntruflana á gjörgæslu og aðferðir til að bæta svefn sjúklinga. Samþætt fræðileg samantekt
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2026 · 102 (2) · 62-73
DOI: 10.33112/th.102.2.3 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2026. Verfasst von Eyrún Franzdóttir und 1 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Að greina þá þætti sem hafa mest truflandi áhrif á svefn gjörgæslusjúklinga og hvaða aðferðum hægt er að beita til að bæta hann. Leitast var við að svara rannsóknarspurningunum „Hvað veldur svefntruflunum fullorðinna sjúklinga á gjörgæsludeild?“ og „Hvaða aðferðum er hægt að beita til að bæta svefn fullorðinna sjúklinga á gjörgæsludeild?“ og setja fram tillögur að aðferðum sem hjúkrunarfræðingar geta beitt til að lágmarka svefntruflanir gjörgæslusjúklinga. Aðferð Notast var við aðferðafræði samþættra fræðilegra samantekta (e. integrative review). Leit að greinum fór fram í PubMed, Scopus og Web of Science sem birtar voru árin 2018 til 2023. Gæði rannsóknanna voru metin með gæðaviðmiðum frá Joanna Briggs-stofnuninni og notast við „matrix“-töflu til að lýsa og samþætta niðurstöður þeirra. Niðurstöður Fjórtán rannsóknir stóðust inntökuskilyrði samantektarinnar. Helstu orsakir svefntruflana á gjörgæslu voru hávaði, lýsing, líðan og inngrip og/ eða íhlutir. Aðferðir til að bæta svefn gjörgæslusjúklinga skiptust í fjóra flokka: Aðferðir sem draga úr áhrifum hávaða á svefn; Aðferðir sem draga úr áhrifum lýsingar á svefn; Aðferðir sem draga úr áhrifum vanlíðanar á svefn og Margþættar aðferðir sem draga úr áhrifum umhverfisáreitis á svefn. Niðurstöður sýndu að með því að draga úr samtölum starfsfólks, líkja e$ir dægursveiflu birtu með lýsingu, bregðast við kvíða sjúklinga og takmarka meðferðartengd inngrip yfir nótt mátti draga úr svefntruflunum gjörgæslusjúklinga. Greinin varpar þannig ljósi á aðferðir sem starfsfólk á gjörgæslu getur nýtt sér til að stuðla að bættum svefni sjúklinga. Ályktanir Orsakir svefntruflana gjörgæslusjúklinga eru margþættar og persónubundnar. Hjúkrunarfræðingar þurfa að horfa heildrænt á svefnvandamál og beita einstaklingsbundnum aðferðum til að draga úr þeim. Lykilorð svefntruflanir, gjörgæslusjúklingar, umhverfisáreiti, hjúkrun, einstaklingsbundin meðferð
Zitieren
APA
Franzdóttir, E., & Gunnarsdóttir, Þ. (2026). Orsakir svefntruflana á gjörgæslu og aðferðir til að bæta svefn sjúklinga. Samþætt fræðileg samantekt. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 102(2), 62-73. https://doi.org/10.33112/th.102.2.3
Vancouver
Franzdóttir E, Gunnarsdóttir Þ. Orsakir svefntruflana á gjörgæslu og aðferðir til að bæta svefn sjúklinga. Samþætt fræðileg samantekt. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2026;102(2):62-73. doi:10.33112/th.102.2.3
BibTeX
@article{Franzdttir2026,
author = {Franzdóttir, Eyrún and Gunnarsdóttir, Þóra},
title = {Orsakir svefntruflana á gjörgæslu og aðferðir til að bæta svefn sjúklinga. Samþætt fræðileg samantekt},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2026},
volume = {102},
number = {2},
pages = {62--73},
doi = {10.33112/th.102.2.3}
}
EUVIMED