Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Sunna Jónsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Ofbeldi er þekkt heilsufarsvandamál og mikilvægt að heilbrigðisstarfsmenn hafi þekkingu og færni í að spyrja um ofbeldi og bregðast við því. Spurningalistanum PREMIS (Physician Readiness to Manage Intimate Partner Violence Survey) er ætlað að kanna þekkingu heilbrigðisstarfsfólks varðandi ofbeldi. Tilgangur rannsóknarinnar var tvíþættur: 1) Að þýða, staðfæra og athuga próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu af PREMIS 2) Að meta gildi PREMIS til notkunar fyrir íslenskt heilbrigðisstarfsfólk. Aðferð Tveir þýðendur þýddu PREMIS yfir á íslensku og þriðji þýddi hann aftur á ensku til að athuga hvort merking listans hefði haldið sér í gegnum þýðingarferlið. Þýðendurnir voru heilbrigðisstarfsmenn með góða enskuþekkingu ásamt þekkingu á íslenska heilbrigðiskerfinu. Fimm heilbrigðisstarfsmenn voru fengnir í hugarferlaviðtöl til að meta orðalag og inntak PREMIS. Listinn var lagður fyrir úrtak heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi (n=177). Innra samræmi allra kvarða var reiknað með Cronbach´s alpha og þáttagerð skoðanakvarðans var könnuð með meginhlutagreiningu (e. Principal Components Analysis). Niðurstöður Áreiðanleiki PREMIS var mældur með Cronbach’s alpha og reyndist a=0,71-0,98 eftir kvörðum. Þáttagreining gaf til kynna sjö skýra þætti. Spurningarnar röðuðust ekki eins upp á þætti í íslensku útgáfu PREMIS og þeirrar bandarísku, sérstaklega hvað starfsumhverfi og lagalega þætti snerti, sem er auðskýranlegt með tilliti til þess hversu ólík heilbrigðiskerfi þessara landa eru. Ályktanir Mat rannsakenda er að tekist hafi að staðfæra og aðlaga PREMIS að starfsumhverfi íslensks heilbrigðisstarfsfólks. Þáttagerð listans er ekki sú sama og í bandarísku útgáfunni en það kemur ekki á óvart þar sem heilbrigðiskerfin tvö eru jafn ólík og raun ber vitni. Þáttagerð íslensku útgáfunnar er hreinleg og áreiðanleiki í svörum viðunandi. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa sterklega til kynna að íslenska útgáfa PREMIS sé áreiðanleg og viðeigandi til notkunar í íslensku heilbrigðiskerfi. Lykilhugtök PREMIS, staðfæring matstækja, forprófun, ofbeldi í nánum samböndum, heilbrigðisstarfsfólk.
Zitieren
APA
Jónsdóttir, S., Heimisson, G., & Jónsdóttir, S. (2024). Þýðing og prófun á PREMIS. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.2.3
Vancouver
Jónsdóttir S, Heimisson G, Jónsdóttir S. Þýðing og prófun á PREMIS. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.2.3
BibTeX
@article{Jnsdttir2024,
author = {Jónsdóttir, Sunna and Heimisson, Guðmundur and Jónsdóttir, Sigríður},
title = {Þýðing og prófun á PREMIS},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2024},
doi = {10.33112/th.100.2.3}
}
EUVIMED