EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Eftirfylgni og árangur meðferðar hjá fólki með sykursýki gerð 2 innan tveggja sykursýkismóttaka á heilsugæslustöðvum

Matthildur Birgisdóttir, Hafdís Skúladóttir, Árún Sigurðardóttir

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024

DOI: 10.33112/th.100.2.2 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Matthildur Birgisdóttir und 2 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Tilgangur Hjúkrunarstýrðum móttökum einstaklinga með sykursýki innan heilsugæslunnar fjölgar þar sem unnið er eftir alþjóðlegum viðmiðum. Tilgangur rannsóknarinnar var að greina árangur eftirfylgni hjúkrunarstýrðrar sykursýkismóttöku innan heilsugæslu og bera saman við alþjóðleg viðmið. Ásamt því að rannsaka lyfjanotkun og veitta þjónustu. Aðferð Megindleg afturvirk ferilrannsókn framkvæmd innan heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) Fjallabyggðar og Dalvíkur. Úrtakið voru skjólstæðingar sykursýkismóttöku frá ársbyrjun 2019 til loka árs 2020 sem höfðu tvær (mæling 1 og 2) langtímablóðsykursmælingar (HbA1c gildi), með a.m.k. sex mánaða millibili. Lýsandi og ályktunar tölfræði var notuð og mæligildi hópsins borin saman við alþjóðleg viðmið. Niðurstöður Við upphaf rannsóknar var meðalaldur þátttakenda (n=88) 66,1 (±12,68) ár og hlutfall karla 58%. Sjúkdómslengd var á bilinu 1-21 ár. Við mælingu 2 var meðal HbA1c gildið 47,8 mmól/mól (±14,9). Allir þátttakendur tóku lyf að staðaldri. Flestir tóku blóðsykurslækkandi lyf (93,2%) og tæplega helmingur (44,3%) tók Glucagon-like peptide-1 agonista (GLP-1). Alls tóku 80,7% þátttakenda blóðþrýstingslækkandi lyf og um helmingur tók blóðfitulækkandi lyf. Algengustu fylgikvillar voru hjartasjúkdómar (84,1%). HbA1c gildi (p=0,049), líkamsþyngdarstuðull (p=0,013), og slagbilsþrýstingur (p=0,040) lækkaði í mælingu 2. Við mælingu 2 var í 72,7% tilfella alþjóðlegum viðmiðum náð í HbA1c gildi en einungis 32% þátttakenda náðu viðmiðum með líkamsþyngdarstuðul við sömu mælingu. Ályktun Meirihluti þátttakenda náði alþjóðlegum viðmiðum í mæligildum. Reglubundið eftirlit, mæting í sykursýkismóttöku og samvinna við skjólstæðinga bar því árangur. Þetta sýnir klínískt mikilvægi þess að hafa hjúkrunarstýrðar sykursýkismóttökur innan heilsugæslunnar. Sykursýkismóttakan virðist vinna eftir alþjóðlegum viðmiðum sem mælt er með að unnið sé eftir. Lykilorð Sykursýkismóttaka, heilsugæsla, alþjóðleg viðmið, afturvirk ferilrannsókn.

Zitieren

APA

Birgisdóttir, M., Skúladóttir, H., & Sigurðardóttir, Á. (2024). Eftirfylgni og árangur meðferðar hjá fólki með sykursýki gerð 2 innan tveggja sykursýkismóttaka á heilsugæslustöðvum. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.2.2

Vancouver

Birgisdóttir M, Skúladóttir H, Sigurðardóttir Á. Eftirfylgni og árangur meðferðar hjá fólki með sykursýki gerð 2 innan tveggja sykursýkismóttaka á heilsugæslustöðvum. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.2.2

BibTeX
@article{Birgisdttir2024,
  author = {Birgisdóttir, Matthildur and Skúladóttir, Hafdís and Sigurðardóttir, Árún},
  title = {Eftirfylgni og árangur meðferðar hjá fólki með sykursýki gerð 2 innan tveggja sykursýkismóttaka á heilsugæslustöðvum},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2024},
  doi = {10.33112/th.100.2.2}
}
Kostenlos starten →