Í átt til rauðra heimsbókmennta: Um þýðingar og mótun hefðarveldis innan róttæku vinstrihreyfingunnar á Íslandi 1919–1943
Ritið · 2024 · 24 (2)
DOI: 10.33112/ritid.24.2.7 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, 2024. Verfasst von Benedikt Hjartarson.
Abstract (Originalsprache)
Greinin hefur að geyma kortlagningu á umfangsmikilli þýðingaútgáfu róttæku vinstrihreyfingarinnar á tímabilinu 1919–1943 og varpar ljósi á þá markvissu uppbyggingu á nýju hefðarveldi rauðra heimsbókmennta sem þar á sér stað. Sjónum er beint að tengslum við starfsemi Kominterns og dreifingu róttæks lesefnis á erlendum málum og útgáfan hér á landi könnuð sem angi af alþjóðlegri útgáfustarfsemi vinstrihreyfingarinnar á þeim tíma þegar unnið er að uppbyggingu nýs alþjóðasinnaðs bókmenntakerfis á heimsvísu. Greiningin snýr annars vegar að þýðingum í íslenskum tímaritum, þar sem horft er jöfnum höndum til Réttar, Rauða fánans og Rauðra penna, sem komu út á vegum vinstrihreyfingarinnar, og þýddum bókmenntaverkum alþjóðasinna í menningartímaritum eins og Iðunni, Eimreiðinni og Dvöl. Hins vegar er fjallað um útgáfu þýðinga á bókarformi, bæði á vegum forlaga sem tilheyrðu róttæku vinstrihreyfingunni og annarra forlaga. Kortlagningin bregður upp mynd af þeim margbrotnu fjölþjóðlegu straumum sem berast inn í íslenskt bókmenntakerfi með þýðingum á alþjóðasinnuðu lesefni á tímabilinu. Á meðal þeirra verka sem tekin eru til umfjöllunar eru textar eftir Maksím Gorkij, Martin Andersen Nexø, Upton Sinclair og aðra höfunda sem gegndu veigamiklu hlutverki í íslensku bókmenntalífi á tímabilinu, en einnig vettvangsfrásagnir og aðrar smærri bókmenntagreinar og verk höfunda á borð við Jack London og B. Traven, sem hér eru tengd við hefð rauðra svaðilfarasagna.
Zitieren
APA
Hjartarson, B. (2024). Í átt til rauðra heimsbókmennta: Um þýðingar og mótun hefðarveldis innan róttæku vinstrihreyfingunnar á Íslandi 1919–1943. Ritið, 24(2). https://doi.org/10.33112/ritid.24.2.7
Vancouver
Hjartarson B. Í átt til rauðra heimsbókmennta: Um þýðingar og mótun hefðarveldis innan róttæku vinstrihreyfingunnar á Íslandi 1919–1943. Ritið. 2024;24(2). doi:10.33112/ritid.24.2.7
BibTeX
@article{Hjartarson2024,
author = {Hjartarson, Benedikt},
title = {Í átt til rauðra heimsbókmennta: Um þýðingar og mótun hefðarveldis innan róttæku vinstrihreyfingunnar á Íslandi 1919–1943},
journal = {Ritið},
year = {2024},
volume = {24},
number = {2},
doi = {10.33112/ritid.24.2.7}
}
EUVIMED