EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Mér fannst ég verða aftur ég sjálf

Íris Björnsdóttir, Sigfríður Karlsdóttir, Sólrún Sigurðardóttir

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024

DOI: 10.33112/th.100.2.1 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Íris Björnsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Tilgangur Tilgangur þessarar rannsóknar var að afla aukinnar þekkingar á reynslu kvenna af hormónauppbótarmeðferð á breytingaskeiði. Breytingaskeið getur hafist allt að 10 árum áður en tíðahvörf skella á. Á þessu skeiði getur konan upplifað ýmis líkamleg og andleg einkenni. Hormónameðferð tengd breytingaskeiði er árangursríkur meðferðarmöguleiki til meðhöndlunar á líkamlegri og andlegri vanlíðan. Aðferð Eigindleg fyrirbærafræðileg aðferð var valin og stuðst við Vancouver-skólann í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru 12 íslenskar konur á aldrinum 47-53 ára sem höfðu verið á hormónauppbótarmeðferð síðustu 3-24 mánuði og voru valdar með tilgangsúrtaki. Tekin voru 12 einstaklingsviðtöl, rituð upp orð fyrir orð og að lokum þemagreind. Niðurstöður Yfirþema rannsóknarinnar var: Mér fannst ég verða aftur ég sjálf. Jafnframt voru sex meginþemu greind: Líkaminn varð aftur eins og ég þekkti hann, Það kviknaði aftur á mér, Félagsleg tengsl byggð upp, Eftirsjá að tímanum sem ég missti, Virk hlustun og samskipti og Þetta þroskar mann. Konurnar greindu frá jákvæðum líkamlegum, andlegum og félagslegum breytingum eftir að þær byrjuðu á hormónauppbótarmeðferð. Til dæmis hurfu verkir í liðum og þær hvíldust betur á nóttunni sem var ein af ástæðum þess að þær byrjuðu á hormónameðferð. Í rannsókninni kom fram að konurnar hefðu viljað fá greiningu fyrr þar sem þær áttu nokkrar læknisheimsóknir að baki og upplifðu eftirsjá að tímanum þegar þær voru að kljást við einkenni breytingaskeiðs. Einnig hefðu þær viljað fá meiri skilning frá fagfólki þegar þær leituðu eftir aðstoð. Ályktun Álykta má að hormónauppbótarmeðferð bæti verulega líkamlega-, andlega- og félagslega líðan kvenna á breytingaskeiði. Mikilvægt er að heilsugæslan komi til móts við konur sem eru að ganga í gegnum breytingaskeiðið og bæti stuðning og fræðslu til þeirra um breytingaskeiðið þannig að þær geti tekið upplýsta ákvörðun um ávinning og áhættuþætti hormónauppbótarmeðferðar. Lykilorð Hormónauppbótarmeðferð, breytingaskeið, reynsla, konur, fyrirbærafræði

Zitieren

APA

Björnsdóttir, Í., Karlsdóttir, S., & Sigurðardóttir, S. (2024). Mér fannst ég verða aftur ég sjálf. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.2.1

Vancouver

Björnsdóttir Í, Karlsdóttir S, Sigurðardóttir S. Mér fannst ég verða aftur ég sjálf. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.2.1

BibTeX
@article{Bjrnsdttir2024,
  author = {Björnsdóttir, Íris and Karlsdóttir, Sigfríður and Sigurðardóttir, Sólrún},
  title = {Mér fannst ég verða aftur ég sjálf},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2024},
  doi = {10.33112/th.100.2.1}
}
Kostenlos starten →