EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

„Var ég þá dómari! Var ég böðull?“

Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Jón Karl Helgason, Hafsteinn Þór Hauksson

Ritið · 17.12.2025 · (3) · 5-28

DOI: 10.33112/ritid.25.3.2 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, online erschienen am 17.12.2025. Verfasst von Ingibjörg Þorsteinsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Þverfaglegar rannsóknir á sambandi laga og bókmennta eiga sér langa sögu í Bandaríkjunum og náðu síðar fótfestu í Evrópu. Upphaflega tengdust þær umræðum um áhugavert lesefni fyrir nemendur í laganámi. Í greininni er fjallað stuttlega um þróun rannsóknarsviðsins og þá mælikvarða sem notaðir hafa verið til þess að meta hvort skáldverk eigi heima á þessum vettvangi. Höfuðviðfangsefnið er síðan skáldsaga Gunnars Gunnarssonar, Svartfugl. Er hún sett í samband við ýmsar réttarheimspekilegar og stjórnspekilegar hugmyndir, sem og sígildar áskoranir réttarkerfisins við leitina að þeim sannleika sem telst hafinn yfir skynsamlegan vafa. Sagan er rædd í ljósi valdgreiningarhugmynda, stöðu matsmanna og þýðingar matsgerða og kenninga af meiði amerískrar raunsæishyggju í lögfræði um staðreyndarefa og regluefa. Niðurstaða höfunda er að Svartfugl eigi ekki síður erindi við íslenska laganema en ýmis sígild skáldverk sem mestrar hylli hafa notið á þessum vettvangi erlendis.

Zitieren

APA

Þorsteinsdóttir, I., Helgason, J. K., & Hauksson, H. Þ. (2025). „Var ég þá dómari! Var ég böðull?“. Ritið, 5-28. https://doi.org/10.33112/ritid.25.3.2

Vancouver

Þorsteinsdóttir I, Helgason JK, Hauksson HÞ. „Var ég þá dómari! Var ég böðull?“. Ritið. 2025:5-28. doi:10.33112/ritid.25.3.2

BibTeX
@article{orsteinsdttir2025,
  author = {Þorsteinsdóttir, Ingibjörg and Helgason, Jón Karl and Hauksson, Hafsteinn Þór},
  title = {„Var ég þá dómari! Var ég böðull?“},
  journal = {Ritið},
  year = {2025},
  number = {3},
  pages = {5--28},
  doi = {10.33112/ritid.25.3.2}
}
Kostenlos starten →