EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Það er eðlilegt að tala um offitu en það er ekki sama hvernig það er gert. Reynsla einstaklinga með offitu af heilbrigðiskerfinu

Unnur Guðjónsdóttir, Árún Kristín Sigurðardóttir

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024

DOI: 10.33112/th.100.1.6 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Unnur Guðjónsdóttir und 1 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Tilgangur Algengi offitu hefur aukist mikið á undanförnum árum. Rúmlega 27% Íslendinga voru með offitu árið 2022. Erlendar rannsóknir gefa til kynna að einstaklingar með offitu fái oft ekki fullnægjandi heilbrigðisþjónustu. Lítið er vitað um reynslu einstaklinga með offitu af notkun heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að bæta þekkingu og dýpka skilning á reynslu einstaklinga með offitu af heilbrigðisþjónustu og hvernig heilbrigðisþjónustu þeir kjósa að fá. Aðferð Eigindleg rannsóknaraðferð þar sem tekin voru fjögur rýnihópaviðtöl við 18 íslenska einstaklinga með offitu, 14 konur og 4 karla á aldrinum 26 til 69 ára. Viðtölin voru greind með eigindlegri aðleiðandi innihaldsgreiningu. Niðurstöður Yfirþemað Það er eðlilegt að tala um offitu en það er ekki sama hvernig það er gert er lýsandi fyrir reynslu einstaklinganna og hvernig heilbrigðisþjónustu þeir kjósa að fá. Allir þátttakendur höfðu yfir langan tíma upplifað bæði jákvæða og neikvæða heilbrigðisþjónustu. Þemun voru þrjú með fjórum undirþemum. A): Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Þar voru undirþemun Hlustun og Framkoma gagnvart skjólstæðingum, sem lýstu því hve mikilvæg þessi atriði voru fyrir upplifun þátttakenda af heilbrigðisþjónustunni. B): Heilbrigðis¬þjónusta sem grípur alla þar sem rætt var um aðgengi að heilbrigðisþjónustu og meðferð við offitu, þekkingu heilbrigðisstarfsfólks og búnað og C): Að horfast í augu við eigin styrkleika og takmarkanir með tveim undirþemum, Viðkvæmni og virðingarleysi og Vinna með þyngdarstjórnun, sem lýstu áhrifunum á einstaklingana sjálfa sem sýndu viðkvæmni í samskiptum við fagfólk en þurftu líka að vilja taka þátt í eigin þyngdarstjórnun og meðferð. Ályktanir Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga og annað heilbrigðisstarfsfólk að veita öllum sömu þjónustu, óháð þyngd. Lykilatriðið er að hlustað sé á skjólstæðinga með offitu. Þannig er hægt að veita þeim viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

Zitieren

APA

Guðjónsdóttir, U., & Sigurðardóttir, Á. K. (2024). Það er eðlilegt að tala um offitu en það er ekki sama hvernig það er gert. Reynsla einstaklinga með offitu af heilbrigðiskerfinu. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.1.6

Vancouver

Guðjónsdóttir U, Sigurðardóttir ÁK. Það er eðlilegt að tala um offitu en það er ekki sama hvernig það er gert. Reynsla einstaklinga með offitu af heilbrigðiskerfinu. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.1.6

BibTeX
@article{Gujnsdttir2024,
  author = {Guðjónsdóttir, Unnur and Sigurðardóttir, Árún Kristín},
  title = {Það er eðlilegt að tala um offitu en það er ekki sama hvernig það er gert. Reynsla einstaklinga með offitu af heilbrigðiskerfinu},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2024},
  doi = {10.33112/th.100.1.6}
}
Kostenlos starten →