Snerting við náttúruna og endurnærandi áhrif hennar á fullorðna Íslendinga: Lýðgrunduð þversniðsrannsókn
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2025
DOI: 10.33112/th.0101.3.2 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2025. Verfasst von Sóley Bender und 2 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Á síðustu árum hefur streita hér á landi aukist, einkum meðal kvenna. Sýnt hefur verið fram á endurnærandi áhrif náttúrunnar á heilsu en lítið er vitað um þessi áhrif út frá lýðfræðilegum þáttum. Megintilgangur þessarar rannsóknar var því að skoða hvort það væri munur á upplifun af snertingu við náttúruna og endurnærandi áhrifum hennar út frá kyni, menntun og búsetu. Aðferð Rannsóknin er lýðgrunduð þversniðsrannsókn. Hún er hluti af fjölþjóðlegri rannsókn í 65 löndum. Hér er stuðst við íslensk gögn rannsóknarinnar. Rafrænn spurningalisti var sendur til 946 Íslendinga 18 ára og eldri sem voru hluti af netpanel Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Unnið var með mælitækin Snerting við náttúruna (Nature Exposure Scale= NES) og Endurnærandi áhrif náttúrunnar (Restoration Outcome Scale= ROS-9). Gagnagreining byggðist á fylgniprófum, tilgátuprófunum og línulegri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður Svörun var 57%. Þátttakendur voru 19-93 ára; meðalaldur 54,3 ár. Konur voru 52%, 57% þátttakenda háskólamenntaðir og 57% bjuggu á höfuðborgarsvæðinu. Við mælingu á NES kom fram marktækur munur á menntun og búsetu en ekki eftir kyni. Í daglegu lífi voru þeir sem bjuggu utan höfuðborgarsvæðisins í meiri snertingu við náttúruna (p=0,001) og tóku meira eftir henni (p
Zitieren
APA
Bender, S., Viðarsdóttir, V., & Örlygsdóttir, B. (2025). Snerting við náttúruna og endurnærandi áhrif hennar á fullorðna Íslendinga: Lýðgrunduð þversniðsrannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.0101.3.2
Vancouver
Bender S, Viðarsdóttir V, Örlygsdóttir B. Snerting við náttúruna og endurnærandi áhrif hennar á fullorðna Íslendinga: Lýðgrunduð þversniðsrannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2025. doi:10.33112/th.0101.3.2
BibTeX
@article{Bender2025,
author = {Bender, Sóley and Viðarsdóttir, Viktoría and Örlygsdóttir, Brynja},
title = {Snerting við náttúruna og endurnærandi áhrif hennar á fullorðna Íslendinga: Lýðgrunduð þversniðsrannsókn},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2025},
doi = {10.33112/th.0101.3.2}
}
EUVIMED