„Samlíðunin er uppspretta hins æðsta saungs“
Ritið · 30.09.2025 · (2) · 9-33
DOI: 10.33112/ritid.25.2.2 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, online erschienen am 30.09.2025. Verfasst von Guðrún Steinþórsdóttir.
Abstract (Originalsprache)
Greinin fjallar um samlíðan (e. empathy) sem grundvallarþátt í mannlegum samskiptum og lykilatriði í heilbrigðisþjónustu. Rætt er um ólíkar skilgreiningar á hugtakinu og dregið fram hvernig samlíðan stýrist bæði af líffræðilegum þáttum, svo sem samspili spegilfrumna, og félagslegum þáttum eins og aðstæðum, tengslum og menningarlegu samhengi. Sérstök áhersla er lögð á hvernig læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk geta þjálfað og tileinkað sér samlíðan í starfi og komið henni til skila í samskiptum við skjólstæðinga meðal annars með því að hlusta af virðingu, sýna næmni og bregðast við tilfinningum annarra af mannúð. Í greininni er einnig rætt hvernig lestur og greining bókmenntatexta getur veitt læknum og læknanemum dýrmæta innsýn í tilfinningalíf sjúklinga og þjálfað þá í að greina og bregðast við ólíkum birtingarmyndum þjáningar. Í því skyni eru teknir til skoðunar valdir kaflar úr skáldsögunum Jójó eftir Steinunni Sigurðardóttur og Grandavegi 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur. Textarnir sýna með áhrifaríkum hætti hvernig skortur á samlíðan getur haft alvarlegar afleiðingar í samskiptum og hvernig bókmenntir geta stuðlað að dýpri skilningi á mannlegri reynslu, þjáningu og læknislistinni sjálfri.
Zitieren
APA
Steinþórsdóttir, G. (2025). „Samlíðunin er uppspretta hins æðsta saungs“. Ritið, 9-33. https://doi.org/10.33112/ritid.25.2.2
Vancouver
Steinþórsdóttir G. „Samlíðunin er uppspretta hins æðsta saungs“. Ritið. 2025:9-33. doi:10.33112/ritid.25.2.2
BibTeX
@article{Steinrsdttir2025,
author = {Steinþórsdóttir, Guðrún},
title = {„Samlíðunin er uppspretta hins æðsta saungs“},
journal = {Ritið},
year = {2025},
number = {2},
pages = {9--33},
doi = {10.33112/ritid.25.2.2}
}
EUVIMED