Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, online erschienen am 06.05.2025. Verfasst von Haukur Ingvarsson.
Abstract (Originalsprache)
Í greininni er fjallað um smásögu Kristínar Eiríksdóttur „Hundrað og fimmtíu fermetrar á hundrað þúsund kall“ (2013) og skáldsögurnar Tómas Jónsson. Metsölubók (1966) eftir Guðberg Bergsson og Leigjandann (1969) eftir Svövu Jakobsdóttur. Í öllum þessum sögum gegnir kalda stríðið mikilvægu hlutverki en þær eiga það jafnframt sameiginlegt að í þeim eru heimili notuð sem myndhverfingar til að spegla hnattræn átök. Þá kemur staða Íslands á alþjóðavettvangi til álita; ungs lýðveldis sem þiggur ríkulega efnahagsaðstoð frá Bandaríkjamönnum eftir seinni heimsstyrjöld og gerir síðan við þá varnarsamning sem tryggir þeim hernaðarréttindi á landinu til langs tíma. Hluti af myndmáli sagnanna þriggja eru leigjendur og leigusalar sem aftur vekur spurningar um hvað leigusali selji og hvað leigjandi hafi keypt. Rýnt er í þessi gagnkvæmu sambönd en sjónum er einnig beint að því hvernig híbýli, bókasöfn og innanstokksmunir eru notuð með táknrænum hætti til að endurspegla þá heimsmynd sem brugðið er upp í verkunum.
Zitieren
APA
Ingvarsson, H. (2025). Heimurinn er heimili. Ritið, 89-107. https://doi.org/10.33112/ritid.25.1.7
Vancouver
Ingvarsson H. Heimurinn er heimili. Ritið. 2025:89-107. doi:10.33112/ritid.25.1.7
BibTeX
@article{Ingvarsson2025,
author = {Ingvarsson, Haukur},
title = {Heimurinn er heimili},
journal = {Ritið},
year = {2025},
number = {1},
pages = {89--107},
doi = {10.33112/ritid.25.1.7}
}
EUVIMED