Jákvæð vinnustaðamenning í leikskóla: forysta, samskipti, samstarf og skipulag
Tímarit um uppeldi og menntun · 24.06.2026 · 35 (1) · 105-124
DOI: 10.24270/tuuom.2026.35.6 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit um uppeldi og menntun, online erschienen am 24.06.2026. Verfasst von Inga Birna Sigurðardóttir und 1 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Vellíðan starfsfólks og jákvæð vinnustaðamenning er talin vera forsenda fyrir faglegu starfi í leikskólum. Rannsóknir benda til aukins álags og streitu í kennarastarfinu þannig að mikilvægt er að skapa vinnuumhverfi sem styður bæði vellíðan starfsfólks og gæði starfsins. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig skólastjóri í leikskóla getur, í samstarfi við starfsfólk, stuðlað að mótun og þróun jákvæðrar og heilsueflandi vinnustaðamenningar. Rannsóknin er starfendarannsókn í einum leikskóla þar sem unnið var markvisst að þróun samskiptahátta, samstarfs og skipulags innan vinnustaðarins. Fræðilegur rammi rannsóknarinnar er byggður á kenningum um vinnustaðamenningu og hlutverk stjórnenda í mótun hennar, meðal annars með því að búa til skýran ramma, stuðla að uppbyggilegum samskiptum og efla þátttöku starfsfólks í þróun starfsins. Niðurstöður benda til þess að sameiginleg ábyrgð starfsfólks á samskiptum, skýr og sýnileg forysta og skipulag sem styður samvinnu séu lykilþættir í þróun jákvæðrar vinnustaðamenningar. Rannsóknin sýnir jafnframt að markviss vinna með samskipti, samstarf og skipulag getur skapað bjargir í krefjandi starfsumhverfi og þannig stuðlað að aukinni starfsánægju í leikskólum.
Zitieren
APA
Sigurðardóttir, I. B., & Hreinsdóttir, A. M. (2026). Jákvæð vinnustaðamenning í leikskóla: forysta, samskipti, samstarf og skipulag. Tímarit um uppeldi og menntun, 35(1), 105-124. https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.6
Vancouver
Sigurðardóttir IB, Hreinsdóttir AM. Jákvæð vinnustaðamenning í leikskóla: forysta, samskipti, samstarf og skipulag. Tímarit um uppeldi og menntun. 2026;35(1):105-124. doi:10.24270/tuuom.2026.35.6
BibTeX
@article{Sigurardttir2026,
author = {Sigurðardóttir, Inga Birna and Hreinsdóttir, Anna Magnea},
title = {Jákvæð vinnustaðamenning í leikskóla: forysta, samskipti, samstarf og skipulag},
journal = {Tímarit um uppeldi og menntun},
year = {2026},
volume = {35},
number = {1},
pages = {105--124},
doi = {10.24270/tuuom.2026.35.6}
}
EUVIMED