EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

Grunnskólastjórar á öndverðri 21. öld: Hlutverk og gildi

Börkur Hansen, Steinunn Helga Lárusdóttir

Tímarit um uppeldi og menntun · 2018

DOI: 10.24270/tuuom.2018.27.6 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit um uppeldi og menntun, 2018. Verfasst von Börkur Hansen und 1 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Nútímakenningar um skólastjórnun beina kastljósinu m.a. að sýn skólastjóra á hlutverk sitt, þeim gildum sem hafa áhrif á starfshætti þeirra (Begley, 2004; Branson, 2005) og hvernig þeir forgangsraða verkefnum sínum. Á síðasta aldarfjórðungi hafa höfundar þessarar greinar rannsakað viðhorf skólastjóra í grunnskólum með spurningalistakönnunum, þ.e. 1991, 2001 og 2006 (Börkur Hansen, Ólafur H. Jóhannsson og Steinunn Helga Lárusdóttir, 2008). Hér er greint frá rannsókn á störfum skólastjóra sem gerð var 2017. Sjónum er beint að þeim gildum sem þeir segjast leggja mesta áherslu á og hvernig þeir forgangsraða helstu verkefnum sínum. Gögnum var safnað með spurningalista sem sendur var til allra skólastjóra í grunnskólum landsins vorið 2017. Dregin er upp mynd af aðstæðum í skólunum, þ.e. skólagerð, skólastærð og kennslufyrirkomulagi, og afstaða skólastjóra til mikilvægra gilda sem tengjast skólastarfi er könnuð. Einnig var athugað hvernig þeir forgangsraða verkefnum, svo sem vinnu við námskrárgerð, samskiptum við starfsfólk, nemendur o.fl. sem tengist störfum þeirra. Niðurstöður benda til þess að nokkurs ósamræmis gæti milli yfirlýstra gilda skólastjóra og raunverulegra. Greininni lýkur með samanburði við fyrri rannsóknir höfunda á forgangsröðun viðfangsefna skólastjóra og umræðum um gildi niðurstaðnanna.

Zitieren

APA

Hansen, B., & Lárusdóttir, S. H. (2018). Grunnskólastjórar á öndverðri 21. öld: Hlutverk og gildi. Tímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/tuuom.2018.27.6

Vancouver

Hansen B, Lárusdóttir SH. Grunnskólastjórar á öndverðri 21. öld: Hlutverk og gildi. Tímarit um uppeldi og menntun. 2018. doi:10.24270/tuuom.2018.27.6

BibTeX
@article{Hansen2018,
  author = {Hansen, Börkur and Lárusdóttir, Steinunn Helga},
  title = {Grunnskólastjórar á öndverðri 21. öld: Hlutverk og gildi},
  journal = {Tímarit um uppeldi og menntun},
  year = {2018},
  doi = {10.24270/tuuom.2018.27.6}
}
Kostenlos starten →