EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

Má rekja mun á lesskilningi kynjanna til mismikillar þátttöku í skólastarfi?

Sigrún Jónatansdóttir, Kristján Ketill Stefánsson, Steinunn Gestsdóttir, Freyja Birgisdóttir

Tímarit um uppeldi og menntun · 2017

DOI: 10.24270/tuuom.2017.26.5 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit um uppeldi og menntun, 2017. Verfasst von Sigrún Jónatansdóttir und 3 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Kynjamunur á lesskilningi, þar sem stúlkur standa sig betur en drengir, er nokkuð þekktur víða um heim. Einnig er vitað að virk þátttaka stúlkna í skólastarfi er meiri en drengja en tengsl virkrar þátttöku í skólastarfi og lesskilnings eru hins vegar minna þekkt. Aukin þekking á þessu sviði getur átt þátt í að bæta lesskilning ungmenna auk þess að draga úr þeim kynjamun sem fram kemur á lesskilningi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna (1) hvort kynjamunur kæmi fram á lesskilningi og virkri þátttöku í skólastarfi, (2) að hve miklu leyti kynjamunur á virkri þátttöku í skólastarfi geti skýrt kynjamun á lesskilningi (miðlunartilgáta) og (3) hvort virk þátttaka í skólastarfi skipti jafn miklu máli fyrir drengi og stúlkur þegar kemur að árangri í lesskilningi (tilgáta um mismunandi áhrif). Rannsóknin er byggð á gögnum úr langtímarannsókninni Þróun sjálfstjórnunar og farsæll þroski ungmenna á Íslandi. Alls tók 561 nemandi þátt. Mæling á virkri þátttöku í skólastarfi fór fram við upphaf 9. bekkjar og notaðar voru niðurstöður sömu nemenda úr lesskilningshluta samræmdra prófa í íslensku við upphaf 10. bekkjar. Formgerðargreining var notuð til að prófa tilgátur rannsóknarinnar. Drengir komu verr út úr lesskilningsprófum og sýndu minni virka þátttöku í skólastarfi en stúlkur. Virk þátttaka miðlaði að fullu áhrifum kyns á lesskilning og ekki fannst greinanlegur munur á forspá virkrar þátttöku í skólastarfi um lesskilning eftir kyni. Því er hugsanlegt að kynjamuninn á lesskilningi hafi mátt rekja til skorts á virkri þátttöku drengja í skólastarfi og að aukinn stuðningur við virka þátttöku í skólastarfi sé líklegur til að skila sér í auknum lesskilningi hjá báðum kynjum.

Zitieren

APA

Jónatansdóttir, S., Stefánsson, K. K., Gestsdóttir, S., & Birgisdóttir, F. (2017). Má rekja mun á lesskilningi kynjanna til mismikillar þátttöku í skólastarfi?. Tímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/tuuom.2017.26.5

Vancouver

Jónatansdóttir S, Stefánsson KK, Gestsdóttir S, Birgisdóttir F. Má rekja mun á lesskilningi kynjanna til mismikillar þátttöku í skólastarfi?. Tímarit um uppeldi og menntun. 2017. doi:10.24270/tuuom.2017.26.5

BibTeX
@article{Jnatansdttir2017,
  author = {Jónatansdóttir, Sigrún and Stefánsson, Kristján Ketill and Gestsdóttir, Steinunn and Birgisdóttir, Freyja},
  title = {Má rekja mun á lesskilningi kynjanna til mismikillar þátttöku í skólastarfi?},
  journal = {Tímarit um uppeldi og menntun},
  year = {2017},
  doi = {10.24270/tuuom.2017.26.5}
}
Kostenlos starten →