EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Kyngervi kennara í augum foreldra: Mótsagnakenndar kröfur

Maríanna Jónsdóttir, Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Netla · 2018

DOI: 10.24270/netla.2018.6 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, 2018. Verfasst von Maríanna Jónsdóttir und 1 weiteren Autor:innen. Die Arbeit wurde bisher 1-mal zitiert (Crossref).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Í greininni er fjallað um viðhorf foreldra til kyngervis grunnskólakennara. Rannsóknin fólst í viðtölum við tíu foreldra, fjóra karla og sex konur, sem áttu bæði dreng og stúlku í grunnskóla, og var að minnsta kosti eitt barnanna á yngsta stigi og ann að á miðstigi grunnskólans þegar viðtölin voru tekin. Viðmælendur voru spurðir um afstöðu sína til kyns og kyngervis kennara, karlmennsku, kvenleika, virðingar, aga og umhyggju – allt í því augnamiði að fá vitneskju um hvort og á hvaða hátt þessi viðhorf væru kynjuð. Viðtölin voru greind í tveimur meginþrepum. Á fyrra þrepi voru greind nokkur þemu, svo sem karlmennska og kvenleiki; kennarar sem fyrirmyndir og virðing, agi og umhyggja. Við ítarlegri skoðun var bersýnilegt að viðhorf foreldranna voru lituð af einstaklingshyggju og eðlishyggju. Jafnframt komu í ljós ekki einungis ólíkar skoðanir meðal viðmælenda heldur mótsagnir í viðhorfum. Áhersla viðmælenda á einstaklingsmun er mjög líklega til marks um frekar almennan, ef ekki lítinn, skilning á þýðingu kynjajafnréttismála fyrir skólastarfið. Höfundar vilja árétta það að ef sérstakur vilji er fyrir hendi til að fjölga körlum í grunnskólakennslu, umfram það að mennta þarf fjölda bæði karla og kvenna til starfsins, verður að forðast að gera það á forsendum sem byggjast á staðalmyndum og hefðbundnum kynhlut verkum. Í kennaramenntuninni þarf að undirbúa kennaranema af öllum kynjum undir allar hliðar starfsins. Þar á meðal að þeir geti sem nýbrautskráðir kennarar vænst þess að stundum verði gerðar til þeirra ólíkar kröfur eftir kyni af aðilum innan og utan skólans.

Zitieren

APA

Jónsdóttir, M., & Jóhannesson, I. Á. (2018). Kyngervi kennara í augum foreldra: Mótsagnakenndar kröfur. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2018.6

Vancouver

Jónsdóttir M, Jóhannesson IÁ. Kyngervi kennara í augum foreldra: Mótsagnakenndar kröfur. Netla. 2018. doi:10.24270/netla.2018.6

BibTeX
@article{Jnsdttir2018,
  author = {Jónsdóttir, Maríanna and Jóhannesson, Ingólfur Ásgeir},
  title = {Kyngervi kennara í augum foreldra: Mótsagnakenndar kröfur},
  journal = {Netla},
  year = {2018},
  doi = {10.24270/netla.2018.6}
}
Kostenlos starten →