EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Mat nýliða á gagnsemi leiðsagnar í starfi kennara

María Steingrímsdóttir, Guðmundur Engilbertsson

Netla · 2018

DOI: 10.24270/netla.2018.3 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, 2018. Verfasst von María Steingrímsdóttir und 1 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Í greininni er fjallað um íslenskan hluta norrænnar rannsóknar á nýliðum í grunn- og framhaldsskólum – Nordment1 . Rannsóknin var unnin í samstarfi fræðimanna frá háskólunum í Osló, Gautaborg, Árósum, Turku og Akureyri. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig stuðningur í skólum, skólastjórnun og skipulag innan skóla hefur áhrif á það hvernig nýir kennarar aðlagast kennarastarfinu og hvernig þeir meta eigin færni og þær aðstæður sem skólarnir bjóða þeim. Þýði rannsóknarinnar var kennarar á 1.–3. starfsári eða sem höfðu nýlokið þremur starfsárum. Rannsóknin var megindleg og var sami spurningalisti notaður, þýddur og staðfærður, í öllum þátttökulöndunum. Hér á landi var spurningalistinn sendur til 280 kennara, um þriðjungur starfaði í framhaldsskóla og tveir þriðju í grunnskóla. Niðurstöður eru byggðar á svörum 239 kennara, svarhlutfall var rúm 85%.Meginmarkmið þessarar greinar er að gefa innsýn í þann hluta niðurstaðnanna sem lýtur að leiðsögn nýliða í grunn- og framhaldsskólum á Íslandi. Skoðað er hvernig henni er háttað á fyrsta starfsári og hvort tengsl eru milli formlegrar leiðsagnar, tíðni funda með leiðsagnarkennara og mats nýliða á gagnsemi leiðsagnarinnar.Helstu niðurstöður eru þær að leiðsögn hefur áhrif á starfshætti og líðan nýliða ef hún er veitt af kennara sem hefur svipaðan faglegan grunn og nýliðinn og ef þeir funda reglulega saman á leiðsagnartíma. Um þriðjungur þátttakenda hafði hugleitt að hætta í starfi en aðeins tíundi hluti þeirra hafði þó leitað sér að öðru starfi. Ekki voru tengsl milli hugleiðinga þeirra um brotthvarf og þess stuðnings sem þeir fengu í starfi.

Zitieren

APA

Steingrímsdóttir, M., & Engilbertsson, G. (2018). Mat nýliða á gagnsemi leiðsagnar í starfi kennara. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2018.3

Vancouver

Steingrímsdóttir M, Engilbertsson G. Mat nýliða á gagnsemi leiðsagnar í starfi kennara. Netla. 2018. doi:10.24270/netla.2018.3

BibTeX
@article{Steingrmsdttir2018,
  author = {Steingrímsdóttir, María and Engilbertsson, Guðmundur},
  title = {Mat nýliða á gagnsemi leiðsagnar í starfi kennara},
  journal = {Netla},
  year = {2018},
  doi = {10.24270/netla.2018.3}
}
Kostenlos starten →