„Þakklát fyrir reynsluna en ekki fyrir krabbameinið“: Upplifun ungra kvenna af krabbameini og lærdómur þeirrar reynslu
Netla · 2025
DOI: 10.24270//netla.2025/16 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Netla, 2025. Verfasst von Ebba Áslaug Kristjánsdóttir und 1 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Í greininni er fjallað um rannsókn á upplifun fjögurra ungra kvenna sem greindust með krabbamein og lærdómi þeirrar lífsreynslu. Þátttakendur eiga það sameiginlegt að hafa skrifað um reynslu sína þegar þær gengu í gegnum krabbameinsmeðferð. Rýnt er í frásagnir sem deilt var á samfélagsmiðlinum Instagram og útgefin ljóð í því skyni að fá innsýn í líf þeirra á þeim tíma sem þær veikjast og takast á við nýjan veruleika. Auk þess byggja niðurstöður rannsóknarinnar á djúpviðtölum sem tekin voru við sömu konur að nokkrum árum liðnum og varpa ljósi á lærdóm sem þær draga í kjölfar veikindanna. Hér er um eigindlega rannsókn að ræða sem byggir á fyrirbærafræðilegri nálgun þar sem horft er til lífsreynslu fólks og þeirrar merkingar sem í hana er lögð. Í niðurstöðum rannsóknarinnar eru dregin fram þemu sem endurspegla tilfinningaleg átök, breytingar á sjálfsmynd og jákvætt hugarfar í gegnum sársaukafullt ferli, sem jafnframt einkennist af þakklæti, kærleika og fegurð. Þegar síðar er litið um öxl kemur í ljós að veikindin hafa haft þýðingarmikil áhrif á líf þátttakenda, ekki síst varðandi tengsl þeirra við sig sjálfar, annað fólk og lífið sjálft. Rannsóknarefnið er skoðað af fræðilegum sjónarhóli jákvæðrar sálfræði, einkum annarrar bylgju hennar, þar sem horft er til tengsla áfalla og hamingju. Þar að auki er byggt á kenningu um áfallaþroska sem felur í sér þann möguleika að áföll geti stutt við persónulegan þroska fólks og innihaldsríkt líf. Rannsóknir á því sviði hafa fram til þessa verið fátíðar hér á landi. Hagnýtt gildi rannsóknarinnar felst í auknum skilningi á viðkvæmri stöðu ungra kvenna sem greinast með krabbamein og niðurstöður hennar gefa vísbendingar um hvaða þættir geta verið mikilvægir til að styðja við þann hóp á farsælan hátt.
Zitieren
APA
Kristjánsdóttir, E. Á., & Kaldalóns, I. V. (2025). „Þakklát fyrir reynsluna en ekki fyrir krabbameinið“: Upplifun ungra kvenna af krabbameini og lærdómur þeirrar reynslu. Netla. https://doi.org/10.24270//netla.2025/16
Vancouver
Kristjánsdóttir EÁ, Kaldalóns IV. „Þakklát fyrir reynsluna en ekki fyrir krabbameinið“: Upplifun ungra kvenna af krabbameini og lærdómur þeirrar reynslu. Netla. 2025. doi:10.24270//netla.2025/16
BibTeX
@article{Kristjnsdttir2025,
author = {Kristjánsdóttir, Ebba Áslaug and Kaldalóns, Ingibjörg V.},
title = {„Þakklát fyrir reynsluna en ekki fyrir krabbameinið“: Upplifun ungra kvenna af krabbameini og lærdómur þeirrar reynslu},
journal = {Netla},
year = {2025},
doi = {10.24270//netla.2025/16}
}
EUVIMED