Blæðandi hjörtu, tregi og tár í verkum Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo
Ritröð Guðfræðistofnunar · 27.05.2026 · (62) · 80-94
DOI: 10.33112/theol.62.5 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritröð Guðfræðistofnunar, online erschienen am 27.05.2026. Verfasst von Æsa Sigurjónsdóttir.
Abstract (Originalsprache)
Í greininni er fjallað um listsköpun Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo, tveggja íslenskra listamanna af filippseyskum uppruna. Greining á verkum þeirra sýnir hvernig list-sköpun þeirra þjónar sem vettvangur fyrir flókið uppgjör við trúarlegan bakgrunn, menn-ingarlega sjálfsmynd og persónuleg áföll. Hugtakið tvístrun (e. diaspora) er miðlægt í umfjöll-uninni, því að það varpar ljósi á áföll og tilfinningaóreiðu sem oft einkennir líf fólks sem býr á milli ólíkra menningarheima. Höfundur útskýrir hvernig listsköpunin litast af gagnrýni á viðtekin gildi innan filippseyskra hefða, sérstaklega siðferðilega hegðun sem byggist á hug-takinu hiya (skömm eða auðmýkt). Þessi menningarlegi bakgrunnur skapar spennu milli kyn-slóða, þar sem yngri kynslóðin berst fyrir kynja- og kynfrelsi innan innflytjendasamfélagsins. Í verkum Dýrfinnu er dregin upp djúp táknfræði tengd sári hins upprisna Jesú, sem táknar bæði staðfestingu á þjáningu og fyrirheit um sigur yfir dauðanum. Hún notar einnig mynd-mál úr dægurmenningu, svo sem manga og filippseyskar komiks, til að afhelga og endurtúlka trúartákn. Þessi blanda af trúarlegri alvöru og fagurfræði dægurmenningar endurspeglar flókna sjálfsmynd listamannsins.Sýningin Í gegnum súrt og sætt í Nýlistasafninu markar hápunkt í samstarfi þeirra Melanie og Dýrfinnu. Þar er fjallað um ást, fíkn og sorg á berorðan hátt. Þær lýsa verkunum á sýningunni sem „fórnargjöfum úr rústunum“ og sköpunarferlinu sem eins konar sameiginlegri heilun. Niðurstaða greinarinnar er að verk þeirra búi yfir mun meiri dýpt en einföld táknfræði gefur til kynna; þau eru pólitískt og tilvistarlegt uppgjör sem á sér sterkan samhljóm í íslenskum samtíma þar sem listasöfn virkja ýmsa möguleika til inngildingar
Zitieren
APA
Sigurjónsdóttir, Æ. (2026). Blæðandi hjörtu, tregi og tár í verkum Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo. Ritröð Guðfræðistofnunar, 80-94. https://doi.org/10.33112/theol.62.5
Vancouver
Sigurjónsdóttir Æ. Blæðandi hjörtu, tregi og tár í verkum Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo. Ritröð Guðfræðistofnunar. 2026:80-94. doi:10.33112/theol.62.5
BibTeX
@article{Sigurjnsdttir2026,
author = {Sigurjónsdóttir, Æsa},
title = {Blæðandi hjörtu, tregi og tár í verkum Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo},
journal = {Ritröð Guðfræðistofnunar},
year = {2026},
number = {62},
pages = {80--94},
doi = {10.33112/theol.62.5}
}
EUVIMED