Mótun myndmáls
Ritröð Guðfræðistofnunar · 27.05.2026 · (62) · 27-56
DOI: 10.33112/theol.62.3 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritröð Guðfræðistofnunar, online erschienen am 27.05.2026. Verfasst von Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Abstract (Originalsprache)
Aldamótin 1800 marka tímamót í þróun evrópskrar myndlistar þar sem sú táknmyndafræði sem þróast hafði innan kirkjunnar um alda skeið missti vægi sitt sem mótandi afl í nútímamyndlist. Margbrotin heimsmynd nútímans krafðist nýs táknmáls og nýrra mynda til að fanga tilvistarlega stöðu nútímamannsins. Guðfræðingar og listamenn leituðust við að greina þetta ástand og þær áskoranir sem því fylgdu og settu fram merkar lausnir til að yfirvinna þær. Sé horft til hins þýska menningarsvæðis, sem var um margt mótandi á þessu sviði, ber helst að nefna framlag guðfræðingsins Friedrichs Ernsts Schleiermachers (1768–1824) og myndlistarmannsins Caspars Davids Friedrichs (1774–1840). Áhrif skrifa þeirra og verka urðu mikil og náðu víða, þar á meðal til Danmerkur og alla leið til Íslands. Í þessari grein verður þessi umfjöllun listfræðinga og guðfræðinga rakin nánar þar sem hugað verður sérstaklega að þeim hugmyndafræðilegu breytingum sem áttu sér stað á þessum tíma í tengslum við framlag Schleiermachers og Friedrichs. Í lokin veður sýnt fram á hvernig þessi tengsl birtast í íslenskri myndlist þar sem mynd Þórarins B. Þorlákssonar, Sumarkvöld við Reykjavík, er gott dæmi um hvernig þessar hugmyndir, allt frá Friedrich, endurspeglast í sköpun íslenskrar nútímamenningarvitundar.
Zitieren
APA
Eyjólfsson, S. Á. (2026). Mótun myndmáls. Ritröð Guðfræðistofnunar, 27-56. https://doi.org/10.33112/theol.62.3
Vancouver
Eyjólfsson SÁ. Mótun myndmáls. Ritröð Guðfræðistofnunar. 2026:27-56. doi:10.33112/theol.62.3
BibTeX
@article{Eyjlfsson2026,
author = {Eyjólfsson, Sigurjón Árni},
title = {Mótun myndmáls},
journal = {Ritröð Guðfræðistofnunar},
year = {2026},
number = {62},
pages = {27--56},
doi = {10.33112/theol.62.3}
}
EUVIMED