EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Grafið utan garðs?

Hjalti Hugason

Ritröð Guðfræðistofnunar · 27.05.2026 · (62) · 2-26

DOI: 10.33112/theol.62.2 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Ritröð Guðfræðistofnunar, online erschienen am 27.05.2026. Verfasst von Hjalti Hugason.

AbstractBibliografische AngabenZitieren

Abstract (Originalsprache)

Allt fram að gildistöku nýrra hegningarlaga fyrir Ísland 1870 voru í gildi lög sem kváðu á um að þau sem féllu fyrir eigin hendi skyldu jörðuð utan kirkjugarðs nema ef geðrænum sjúkdómum væri um að kenna. Frá því um miðja nítjándu öld beittu dönsk stjórnvöld sér þó fyrir því að löggjöfinni væri beitt af eins mikilli mildi og verða mætti án þess þó að dregið væri úr alvarleika sjálfsvíganna. Í greininni er leitast við að varpa ljósi á lagaframkvæmd í þessu efni. Aðeins þrjú dæmi hafa fundist um greftrun utan garðs. Á fyrsta áratugi nítjándu aldar úrskurðuðu sýslumenn tvisvar að svo skyldi gert. Ástæða er að ætla að þriðja tilvikið hafi orðið vegna mistaka hreppstjóra. Tíu dæmi hafa fundist um að yfirvöld heimiluðu að fólki væri veitt kirkjuleg útför í kjölfar sjálfsvíga, oftast vegna geðræns ástands.Til var millistig milli þessara tveggja forma greftrunar, þ.e. greftrun í kyrrþey. Þá skyldi grafið utarlega í kirkjugarði án nokkurra helgisiða eða sálmasöngs nema ef moldun var leyfð sérstaklega. Um slíkar greftranir hafa líka fundist tíu dæmi, eins og um kirkjulegar útfarir við þessar aðstæður. Flest eru þau frá tímanum eftir að danska stjórnin hafði gefið út fyrirmæli um aukna mannúð. Var þá í vaxandi mæli tekið að líta til eftirlifandi ættingja.

Zitieren

APA

Hugason, H. (2026). Grafið utan garðs?. Ritröð Guðfræðistofnunar, 2-26. https://doi.org/10.33112/theol.62.2

Vancouver

Hugason H. Grafið utan garðs?. Ritröð Guðfræðistofnunar. 2026:2-26. doi:10.33112/theol.62.2

BibTeX
@article{Hugason2026,
  author = {Hugason, Hjalti},
  title = {Grafið utan garðs?},
  journal = {Ritröð Guðfræðistofnunar},
  year = {2026},
  number = {62},
  pages = {2--26},
  doi = {10.33112/theol.62.2}
}
Kostenlos starten →