Formáli ritstjóra
Ritröð Guðfræðistofnunar · 09.01.2026 · (61) · 1
DOI: 10.33112/theol.61.1 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritröð Guðfræðistofnunar, online erschienen am 09.01.2026. Verfasst von Haraldur Hreinsson.
Abstract (Originalsprache)
Í þessu hefti Ritraðar Guðfræðistofnunar eru fjórar ritrýndar greinar. Í fyrstu greininni fæst Arngrímur Vídalín, dósent við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, við hugmyndir Ágústínusar kirkjuföður frá Hippó um skrímsl og varpar ljósi á hugmyndasögulegan farveg þeirra til Íslands og viðtökur þeirra hér á landi á síðmiðöldum. Í annarri grein heftisins fjallar Björn Þór Vilhjálmsson, dósent við Íslensku- og menningardeild við Hugvísindasvið Háskóla Íslands, um kvikmyndina Breaking the Waves eftir danska leikstjórann Lars von Trier. Í greiningu sinni dregur Björn fram trúarlega þræði myndarinnar og setur í samhengi við femínískar túlkunaráherslur en þessir þættir myndar-innar hafa hlotið mikla athygli túlkenda síðan myndin kom út árið 1996. Í þriðju greininni er að finna framhald á rannókn Hjalta Hugasonar, prófessors emerít-usar, á sjálfsvígum á nítjándu öld. Að þessu sinni leitast Hjalti við að varpa ljósi á ástæður sjálfsvíga á grundvelli þeirra heimilda sem aðgengilegar eru frá tímabilinu. Í fjórðu og síðustu greininni fjallar Rúnar Már Þorsteinsson, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild á Hugvísindasviði Háskóla Íslands, um siðfræðilegar áherslur í Fyrra Pétursbréfi og félagslegt samhengi þeirra en dygðin agapē fær sérstaka athygli í umfjölluninni. Auk þess færir Rúnar rök fyrir því að helsta fyrirmynd höfundar bréfsins sé Rómverjabréf Páls postula og það megi þannig staðsetja innan pálshefðar í hinu frumkristna landslagi.
Zitieren
APA
Hreinsson, H. (2026). Formáli ritstjóra. Ritröð Guðfræðistofnunar, 1. https://doi.org/10.33112/theol.61.1
Vancouver
Hreinsson H. Formáli ritstjóra. Ritröð Guðfræðistofnunar. 2026:1. doi:10.33112/theol.61.1
BibTeX
@article{Hreinsson2026,
author = {Hreinsson, Haraldur},
title = {Formáli ritstjóra},
journal = {Ritröð Guðfræðistofnunar},
year = {2026},
number = {61},
pages = {1},
doi = {10.33112/theol.61.1}
}
EUVIMED