Hæfni, þjálfun og viðhorf heilbrigðisstarfsfólks til starfa í hópslysum og náttúruhamförum samkvæmt viðbragsáætlun
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2023
DOI: 10.33112/th.99.3.2 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2023. Verfasst von Karólína Andrésdóttir und 2 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Það er áskorun að viðhalda góðri heilbrigðisþjónustu þegar þjónustusvæðið er stórt og dreifbýlt. Bráðatilfelli eru oftast fá og því mikilvægt að fagfólk fái reglulega þjálfun og fræðslu svo hæfni og færni sé viðhaldið. Bent hefur verið á að fræðsluform þurfi að vera fjölbreytt til að skila árangri og að teymisvinna sé mikilvæg. Hjúkrunarfræðingar telja sig hafa litla sem enga þekkingu á viðbragðsáætlun þess sjúkrahúss sem þeir starfa við og margir meta hæfni sína til að starfa í stórslysum og náttúruhamförum ekki viðunandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hæfni, þjálfun og viðhorf heilbrigðisstarfsfólks Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) til að starfa í hópslysum eða náttúruhamförum samkvæmt viðbragðsáætlun. Aðferð Megindleg þversniðsrannsókn, íslenskur spurningalisti var staðfærður að starfsaðstæðum HSA. Spurningalistinn innihélt 42 spurningar í fjórum efnisflokkum; a) viðbragðsáætlun og viðbragðsgeta; b) starfshlutverk í viðbrögðum við stórslysi eða hamförum; c) þekking og þjálfun; d) teymisvinna, auk sex bakgrunnsspurninga. Spurningalistinn var lagður rafrænt fyrir hjúkrunarfræðinga, lækna og sjúkraliða heilsugæsla HSA og sjúkrahússins í Neskaupstað (N=104). Gögnum var safnað í nóvember 2021 og greind með lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði. Niðurstöður Svarhlutfallið var 64% (n=66). Niðurstöður voru að 57% höfðu aldrei skoðað viðbragðsáætlunina og 39% þátttakenda þekktu starfshlutverk sitt innan viðbragðsáætlunar illa. Rúmlega 58% höfðu aldrei tekið þátt í hópslysaæfingu innan HSA þar sem viðbragðsáætlunin var virkjuð og 43% aldrei fengið kennslu í hamfaraviðbúnaði. Búnað greiningarsveitarinnar þekktu 10% vel og 15% þekktu almannavarnakerfið vel, en rúm 53% sögðust vera með góða hæfni til þess að takast á við hópslys. Meirihlutinn var sammála um mikilvægi kennslu og þjálfunar í hamfaraviðbúnaði og að hann fengi ekki nægileg tækifæri til þjálfunar. Meirihluti þátttakenda var einnig sammála um mikilvægi teymisvinnu í viðbragði við hópslysum og hamförum. Ályktanir Niðurstöður sýndu að þátttakendur voru sammála um að fræðslu og kennslu í hamfaraviðbúnaði og þekking á viðbragðsáætlun væri ábótavant innan HSA og tilefni til endurbóta. Lykilorð Hópslys, viðbragðsáætlun, starfshlutverk, þjálfun, hæfni.
Zitieren
APA
Andrésdóttir, K., Sigurðardóttir, Á. K., & Jónsdóttir, H. L. (2023). Hæfni, þjálfun og viðhorf heilbrigðisstarfsfólks til starfa í hópslysum og náttúruhamförum samkvæmt viðbragsáætlun. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.99.3.2
Vancouver
Andrésdóttir K, Sigurðardóttir ÁK, Jónsdóttir HL. Hæfni, þjálfun og viðhorf heilbrigðisstarfsfólks til starfa í hópslysum og náttúruhamförum samkvæmt viðbragsáætlun. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2023. doi:10.33112/th.99.3.2
BibTeX
@article{Andrsdttir2023,
author = {Andrésdóttir, Karólína and Sigurðardóttir, Árún K. and Jónsdóttir, Hrafnhildur Lilja},
title = {Hæfni, þjálfun og viðhorf heilbrigðisstarfsfólks til starfa í hópslysum og náttúruhamförum samkvæmt viðbragsáætlun},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2023},
doi = {10.33112/th.99.3.2}
}
EUVIMED