Stuðningur eftir ofbeldi í starfi á geðdeild: Hraðsamantekt
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2026 · 102 (2) · 94-111
DOI: 10.33112/th.102.2.6 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2026. Verfasst von Guðfinna Hilmarsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Að samþætta þekkingu um stuðning við starfsfólk e#ir ofbeldi á geðdeild sem getur dregið úr neikvæðum afleiðingum þess. Ofbeldi gagnvart heilbrigðisstarfsfólki er vaxandi áhyggjuefni, sérstaklega á geðdeildum. Slík atvik geta ha# bæði líkamlegar og sálrænar afleiðingar, þar á meðal þunglyndi, kvíða, svefntruflanir og áfallastreituröskun. Því er mikilvægt að tryggja viðeigandi stuðning í kjölfar ofbeldis til að draga úr langtímaafleiðingum og stuðla að bættri líðan og starfsgetu. Aðferð Hraðsamantekt eigindlegra og megindlegra rannsókna var gerð e#ir ráðleggingum Cochrane og Joanna Briggs-stofnunarinnar (JBI). PRISMAyfirlýsing var notuð til að setja fram gagnsæja lýsingu á samantektinni. Heimildaleit var framkvæmd í gagnasöfnum CINAHL, PsycInfo og PubMed. Skilgreind inntökuskilyrði ákvörðuðu inntöku rannsókna. Gæðamat var framkvæmt samkvæmt matslistum JBI. Niðurstöður voru settar fram í töflum og samþættar í texta. Niðurstöður Tólf rannsóknir voru teknar með í samantektinni, sex megindlegar og sex eigindlegar. Samtals voru 1.437 þátttakendur í úrtökum megindlegra rannsókna og 71 í eigindlegum. Niðurstöður sýndu að aukinn stuðningur dró úr afleiðingum ofbeldis. Starfsfólk vildi aukinn stuðning frá yfirmönnum, samstarfsfélögum, fjölskyldu og vinum. Margir leituðu þó ekki e#ir aðstoð að eigin frumkvæði. Tvö sértæk stuðningsinngrip, lífendurgjöf og EMDR–áfallameðferð, sýndu hvetjandi niðurstöður. Aðrar gagnlegar stuðningsleiðir voru stuðningshópar, fræðsla fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra e#ir ofbeldi, áfallamiðaðar viðranir og jafningjastuðningur. Ályktanir Þörf er á fjölbreyttum og markvissum stuðningi við starfsfólk sem verður fyrir eða vitni að ofbeldi í starfi. Jafnframt þarf að tryggja fræðslu og þjálfun stjórnenda í áfallamiðaðri nálgun og efla stuðningsmenningu innan vinnustaðar. Ljóst er að viðeigandi stuðningur getur dregið úr líkamlegum og sálrænum afleiðingum og þannig stuðlað að bættri líðan og starfsgetu. Niðurstöðurnar skapa grundvöll fyrir skýrari stefnumótun, umbætur í klínísku starfi og vinnuumhverfi heilbrigðisstarfsfólks. Lykilorð ofbeldi á vinnustað, geðhjúkrun, félagslegur stuðningur, sálræn vanlíðan, vinnuumhverfi
Zitieren
APA
Hilmarsdóttir, G., Friðjónsdóttir,, H., & Klinke, M. (2026). Stuðningur eftir ofbeldi í starfi á geðdeild: Hraðsamantekt. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 102(2), 94-111. https://doi.org/10.33112/th.102.2.6
Vancouver
Hilmarsdóttir G, Friðjónsdóttir, H, Klinke M. Stuðningur eftir ofbeldi í starfi á geðdeild: Hraðsamantekt. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2026;102(2):94-111. doi:10.33112/th.102.2.6
BibTeX
@article{Hilmarsdttir2026,
author = {Hilmarsdóttir, Guðfinna and Friðjónsdóttir,, Helga and Klinke, Marianne},
title = {Stuðningur eftir ofbeldi í starfi á geðdeild: Hraðsamantekt},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2026},
volume = {102},
number = {2},
pages = {94--111},
doi = {10.33112/th.102.2.6}
}
EUVIMED